5 leiðir til þess að fá barnið til að borða


Nú á ég barn sem myndi aldrei borða ef hún fengi tækifæri til þess, ég þarf í sífellu að vera að leita að ráðum, hugmyndum til þess að fá barnið til þess að borða! hér fyrir neðan eru ráð sem ég hef stuðst við og vildi ég deila þeim með ykkur! auðvitað eru börn mismunandi svo hver og einn tekur það sem hentar sér og sínu barni

Að vera fyrirmynd

  • Börnin eru eins og svampar og læra það sem fyrir þeim er haft! í mörgum tilfellum herma börnin eftir matarvenjum foreldrana

Að gefa barninu val

  • Börnum finnst yfirleitt gott hafa stjórnina, svo að gefa þeim fleiri möguleika á meðlæti sem þau geta valið úr, getur gert kraftarverk!

Talaðu fallega um matinn

  • Þetta hljómar kjánalega! en að tala fallega um matinn hefur áhrif á hvernig barnið horfir á matinn.

Að leyfa barninu að taka þátt

  • Að hjálpa til við innkaupinn s.s velja ávexti og grænmeti í körfuna (mjög svo spennandi að borða það sem maður valdi sjálfur í búðinni), að hjálpa til við undirbúning! alveg frá því að þvo grænmetið, hræra td jógurtsósu sem er borinn fram köld, leggja á borð,  það eru allskonar hlutir sem hægt er að gera! fólk finnur bara hvað hentar sér og sínu barni

Gerðu matinn spennandi

  • Við borðum nefnilega líka með augunum, við getum gert hann meira spennandi með því föndra örlítið við hann, þó svo það sé ekki nema að skipta honum í parta
    Dóttir mín á td mjög erfitt með það að maturinn snertist hún vill hafa flest allt á disknum sér, en eins og ég sagði hver og einn gerir það sem hentar sér og sínum.

Fyrir neðan má sjá skemmtilegar hugmyndir sem eru hollar, bragðgóðar og spennandi fyrir augað

Það eru til ótal næringar ríkar uppskriftir af pönsum, sem hægt er að bæta við höfrum og ávöxtum! það er hægt að leika sér endalaust með þær













Hægt er að finna mun meira af skemmtilegum hugmyndum á Pinterest.is
Vonandi kom þetta einhverjum að gagni.

SNAPP: GUDBJORGHREFNA
INSTAGRAM:ARNADOTTIRGR


Guðbjörg Hrefna Árnadóttir

Ummæli

Vinsælar færslur