Hvað á hún að æfa? 

Þetta  er  búið að vera  langt  og strangt  ferlli! Fyrir rúmum 2 árum hefði það ekki hvarlað að mér að ég myndi sitja fyrir utan dans tíman að bíða eftir því að dóttir mín kæmi úr söng og dans tíma! eftir að við fundum lækningu fyrir hetjuna okkar var partur af bataferli hennar líkamleg styrking, útaf því að Anja Mist veiktist um 7 mánaða og var í innlögn í 8 mánuði uppá barnaspítala misti hún af öllu því ferlli sem á sér stað þegar að börn byrja að labba útaf því að hún var rúmföst í 8 mánuði og eyddi 1 mánuði í öndunarvél, eftir að við komum heim frá Philadelphiu tók við gríðarleg enduhæfing! ef ég á að segja eins og er þá bjóst ég aldrei við því að Anja Mist myndi labba! ég var svosem alveg undirbúin fyrir  því! Ó vá she proved me wrong!!
   
  


Fyrir utan veikindin og spítaladvölina fæddist Anja Mist
með fótafötlun sem einkendist af of réttu sem lýsir sér þannig að hún beygði fæturnar ekki niður heldur beygðust þeir uppá við, hún gat ekki beygt fæturnar fyrir en að hún var um 6 mánaða. Eftir marga mánaða sjúkraþjálfun og spelku notkun var lítil sem engin virkni í aftanálæris vöðvanum svo sjúkraþjálfarinn bað okkur um að vera undir búin því að Anja myndi ekki labba nema með stuðning hjálpartækja  HÉR má sjá færslu frá þeim tíma þegar að Anja Mist var 6 mánaða.

Áður en Anja Mist byrjaði í leikskóla þá var ég búin að grandskoða alla möguleika sem myndu leyfa dóttur minni að vaxa og dafna á sem bestan hátt! fyrir valinu varð Múlaborg og það besta við Múlaborg fyrir utan frábært teimi af þroskaþjálfurum, stuðningsfulltrúum og leikskóla kennurum var að hreyfingar stöðin var bara á móti svo hún komst í sjúkraþjálfun 2 í viku, svo var hún með stíft æfingarprógram í leikskólanum! Þegar að Anja byrjaði í leikskólanum var hún ekki byrjuð að labba! 3 dögum eftir 2 ára afmælið hennar tók hún sín fyrstu skref! Anja var 2 og hálfs þegar að hún byrjaði að labba! og erum við svo endalaust stolt af henni!








Við vorum ansi lengi að finna íþrótt sem hentaði Önju okkar, við prófuðum fimleika en það hentaði ekki! ég sjálf æfði fimleika þegar að ég var yngri og voru þeir líf mitt! Hennar áhugasvið lá ekki þarna! ég reyni að takmarka dóttur mína sem minnst og vil ég örva hana á sem mestan og besta hátt!
Anja er mjög listræn! hún elskar allt sem tengist því að skapa en það sem hún elskar mest af öllu er að dansa og syngja og þá datt ég niður á frábæra tíma sem heita Musical Theatre hjá Plie.is sem er dansskóli! Vá hvað dóttir mín kom mér á óvart, hún gjörsamlega blómstrar! Kennararnir sína Önju minni svo mikinn skilning og þolinmæði, þarna eru engin vandamál bara lausnir þarna er borið virðing fyrir Önju og ekki sett öll börnin í sama kassann heldur unnið með þau út frá þeirra getu! 




Við erum svo stolt af Önju Mist okkar og hlakka ég  svo til fylgjast með henni vaxa og dafna hjá þeim, þetta  verður klárlega  ekki síðasta námskeiðið sem Anja mun fara á hjá Plie.is

Takk fyrir okkur 


Guðbjörg Hrefna Árnadóttir

Snapp: gudbjorghrefna


Ummæli

Vinsælar færslur