Fyrstu dagarnir heima 

Þegar að daman kom heim bjuggum við en í foreldra húsi þar sem að við vorum að leggja fyrir svo við gætum í framhaldinu keypt okkur íbúð (sem hófst svo að lokum kem að því á eftir) sama dag og daman kom heim greindist Anja með Rinó veiru, Rinó veira er bara venjuleg kvefpest en þessi Rinó veira hefur verið sérstaklega skæð núna undanfarið! Anja þurfti smá leka af súrefni á nóttinni, hún var með leiðinlegt kvef og hósta! Þannig að við foreldrarnir tókum þá ákvörðun að ég myndi fara með dömuna til mömmu í 5-6 daga sem gekk bara vel! á 2 degi heima hjá mömmu var hringt í mig  (vorum í greiðslu mati á þessum tíma) og tilkynnt mér það að við höfðum staðist greiðslumatið! Þvílíkar fréttir! það var hringt á föstudegi og við vorum búin að skrifa undir á mánudegi og fengum svo afhent viku seinna! helgin fór í það að flytja og vorum við flutt inn á sunnudeginum ! 

Litlan er búin að þyngjast vel og fékk topp einkunn þegar að við fórum í fyrirbura eftirlitið um daginn þá  hafði hún þyngst um 230 á viku! við höfum farið í 3 skoðanir síðan,  hún var 3100 gr í fyrri skoðunninni og svo 3-4 dögum síðar kom ljósan aftur til  okkar og skoðaði hana fyrir mig þar sem að hún var komin með augnsýkingu (sem var svo bara partur af kvef pestinni) en við ákváðum að vigta hana bara uppá gamanið og þá var hún búin að þyngjast um 245 gr og var þá orðin 3345gr! Ég er ekki að trúa því hvað ég þarf að hafa lítið fyrir henni! 

Stóra blómið mitt hún Anja Mist átti svo erfitt með pelann útaf bakflæði og lungnasjúkdóminum að hún þyngdist ekkert og á en þann dag í dag ofboðslega erfitt með að þyngjast en hún reynir sitt allra besta og er svo sterk og dugleg.

Anja er búin að vera ótrúlega skilningsrík og góð gagnvart litlu systur sinni!þó svo hún verði stundum afbrýðisöm sem beinist þá aðalega gagnvart mér! hún þarf bara aðeins meiri mömmu knús og mömmu tíma sem ég reyni eins og ég get að uppfylla! 

Um daginn var litlan orðin svöng og byrjaði að láta aðeins heyra í sér þá var Anja mín strax komin! og byrjaði að reyna að róa hana niður " Nei ekki gráta, æi ástin mín ástin mín " ég er alveg orðlaus yfir því hvað hún dáir hana, ef ég á að vera alveg hreinskilin þá bjóst ég við mun meiri afbrýðisemi.

Eftir að við fluttum hefur Anja orðið duglegri við að borða og þá sérstaklega í kvöld matartímanum! Þegar að við keyptum borðið og stólana ákváðum við að kaupa stórustelpu barna stól fyrir Önju í sama stíl og borðstofusettið sem við fengum Ikea til að hvetja hana til að sitja við borðið í matar tíma og þegar að ég segi stóru stelpu stól er ég að meina stól sem hún er ekki föst í :) og viti menn það virkaði ! Síðan að við keyptum stólinn hefur hún setið kjurr á meðan allir borða ! 


Fréttir af Önju Mist 


Gatið er búið að stækka!

Anja Mist er að fara í hjarta aðgerð, við vitum ekki hvenær en við vitum að það er í enda sumars byrjun hausts, það á allavega að gerast á þessu ári! útaf því að gatið í hjartanu  hefur stækkað um helming á stuttum tíma og er hún byrjuð að  grípa gjörsamlega allar pestir. Anja er svo endalaust dugleg og veit ég að hún mun massa þessa aðgerð eins og allt sem hefur orðið að vegi hennar.

Guðbjörg Hrefna Árnadóttir



Ummæli

Vinsælar færslur