Bernaise steikar samloka
í fyrra var okkur boðið í eitt það fallegasta sumar brúðkaup hjá systur hans mannsins míns í Norðurkarólínu í Bandarikjunum, við fórum ásamt fjölskyldunni hans Einars og dvöldum þar í 3 vikur sem var dásamlegt, Anja Mist hafði aldrei verið jafn hress og góð í mettun og naut hún sín svo sannarlega í góða veðrinu og rakanum.
Eftir brúðkaupið var til slatti af kjöti sem við gæddum okkur að síðustu dagana og gerði Einar þessar dásamlegu steikarsamlokur en þar sem að það var ekki til Bernaise essence þá notaði hann edik salt og nautakraft og hún varð ótrúlegt en satt fáránlega góð en hér fyrir neðan er alvöru uppskriftin af Bernaise sósunni.
- Kletta salat
- Steikt paprika
- Steiktir sveppir smjör steiktir
- Smjörsteiktar þunnar sneiðar af lambalæri
- Gott brauð úr bakaríinu
Bernaise
4 eggjarauður
400 gr smjör ( 1 eggjarauða á móti 100 gr af smjöri)
2 tappar úr lítilli flösku af bernes essence
1/2 nautakraftur
dass af fáfnisgrasi (estragon)
Þú byrjar á því að aðskilja eggjarauðurnar frá eggja hvítunum, á meðan bræðir þú smjörið í potti og bætir nautakraftinum þar útí ! Svo þeytir þú eggjarauðurnar í skál og bætir síðan brædda smjörinu hægt og rólega útí (mikilvægt er að gera þetta hægt svo sósan skilur sig ekki) bætir svo Bernaise essencinu útí og estragoninu! Brauðið er síðan snögg steikt á pönnu eða ristað í ristavél.
Nú er ekkert annað að gera en að prufa og njóta!
Guðbjörg Hrefna Árnadóttir



Ummæli