Fæðingarsagan mín
Þá er ég komin aftur eftir árs fjarveru og ætla ég að byrja fyrstu færsluna mína á því að segja ykkur frá mögnuðu fæðingunni minni !
1 apríl kl 03:30 lá ég upp í rúmi alveg að sofna þegar að vatnið fer þá komin 34vikur + 2 daga, ég gjörsamlega sturlaðist úr hræðslu vissi ekkert hvað væri að fara að gerast og minn helsti ótti var að fæða áður en sjúkrabíllinn kæmi! Við hringdum á sjúkrabíl sem kom 12 mínútum seinna sem mér fannst heil eilífð að líða! og þá var það að koma sér í sjúkrabílinn og vonast til þess að fæða ekki á leiðinni. Einar hringdi í mömmu og hún var komin uppá spítala skömmu síðar, tímarnir liðu og ekkert gerðist svo það var ákveðið að gangsetja mig deginum eftir semsagt 2 apríl.
2 apríl gangsetning
Kl er 06:00 og ég lítið búin að sofa vegna kvíða fyrir fæðingunni. Kl 08:00 fékk ég fyrstu töfluna til að koma mér af stað og átti ég að fá töflu á 2 tíma fresti þangað til að ég færi að fá almennilegar hríðar, stuttu eftir fyrstu töfluna fór ég að fá bærilegar hríðar með stuttu milli bili sem duttu niður eftir að ég fór á klósettið en það var í lagi því nú var komið að töflu númer 2, ég fékk 3 töflur í heildina og var komin með 5 í útvíkkun kl 13:00, tímarnir liðu og engin breyting var á útvíkkuninni en kollurinn þó búin að færast neðar.
kl 16:00 vildi ljósmóðirin fá að losa restina af vatninu úr belgnum og setja upp dreypi sem áttu að gefa mér sterkari hríðar til þess að flýta fyrir ferlinu! kl 20:00 fékk ég mænudeyfingu sem gékk ágætlega það þurfti 2 tilraunir þar sem að slangan stíflaðist, þegar að mænudeyfingin var byrjuð að virka sprengdi hún almennilega belginn og setti upp dreypi!
Ég fór að finna mikinn þrýsting niður um 22:00 leitið og var mænudeyfingin hætt að virka og sársaukinn orðin óbærilegur,ég var mjög svo óróleg og hrædd á þessum tímapunkti en Einar og mamma stóðu sig svo vel við það er reyna að halda mér rólegri með hvatningu og blíðlegu tali! þegar klukkan var orðin 23:40 var settur upp annar leggur í bakið þar sem að hinn leggurinn var hættur að virka, það tók dágóðan tíma þar sem að ég þurfti pásu á meðan að hríðin stóð yfir, læknirinn rétt náði að klára áður er kollhríðin byrjaði. Fæðingin sjálf gékk ótrúlega vel og fannst mér hún ganga frekar fljótt fyrir sig! ég var með dásamlega ljósmóður sem leiðbeinti mér fullkomlega í gegnum allt fæðingarferlið!
Eftir að ég fæddi fylgjuna byrjaði að blæða og þurfti að kalla á hjálp skurðlæknis til að stoppa blæðinguna, það þurfti að fara upp í legið og ná í part af fylgjunni sem varð eftir svo að legið gæti haldið áfram að draga sig saman sem tókst að lokum.
Þetta er án efa eitt það magnaðasta og skemmtilegasta sem ég hef gert! og er ég svo þakklát fyrir að hafa náð svona langt, þessi upplifun var heldur öðruvísi en fæðingin hjá systur hennar þó svo þær voru báðar jafn yndislegar!!
Þetta er án efa eitt það magnaðasta og skemmtilegasta sem ég hef gert! og er ég svo þakklát fyrir að hafa náð svona langt, þessi upplifun var heldur öðruvísi en fæðingin hjá systur hennar þó svo þær voru báðar jafn yndislegar!!
Daman kom þann 3 apríl kl 00:33
hún var 2498 gr eða 10 merkur
höfuðmálið var 33 cm og lengd 46cm
Litla draumadísin er að standa sig svo vel og hefur ekkert óvenjulegt komið uppá! verkefnið hennar næstu daga er að ná upp soginu sem gengur vel á miðað við aldur og fyrri störf haha! nýjasta met eru 6 ml á brjósti og því meti var náð kl 07:00 í morgun! daman er reyndar komin með smá gulu svo hún verður í ljósum þangað til í fyrramálið!
Ég verð útskrifuð á morgun sem verður erfitt en það verður dásamlegt að sjá Önju Mist mína eftir alla þessa fjarveru svo þegar að litla daman er búin að ná tökum á drykkjunni að þá fáum við að fara heim með hana sem er nú ekki langt í.
Guðbjörg Hrefna Árnadóttir





Ummæli