Gleðilegt nýtt ár kæru vinir og takk fyrir það gamla
Með bros á vör og gleði í hjarta kveð ég 2016! Þetta ár er búið að vera MAGNAÐ
Með bros á vör og gleði í hjarta kveð ég 2016! Þetta ár er búið að vera MAGNAÐ
( Anja var í kjól frá carters búðinni í hfj )
í desember árið 2015 fór Anja Mist í hjartaþræðingu til að loka fósturæðinni sem til allra hamingju bætti ástandið á Önju okkar til muna, hún losnaði úr öndunarvélinni og fór yfir á Hi-flow sem er öndunarstuðningur sem blæs upp lungun, svo loksins í janúar 2016 komst hún yfir á venjulegt súrefnisgleraugu! Anja þurfti alltaf smá leka og virtist hún ekkert vera að fara að losna við öndunarstuðninginn svo við Einar töluðum við Þórð sem er læknirinn hennar að þetta gengi ekki lengur og Þórður var sammála! 24 feb fórum við svo með dömuna til philadelphiu í leit að lækningu, við dvöldum í philadelphiu í 5 vikur, 5 drullu skemmtilegar og erfiðar vikur.
Við Einar náðum að njóta okkar alveg heilan helling! allir voru búnir að vara okkur við að við myndum ekki geta leyft okkur né gert neitt saman því annað okkar yrði að vera hjá Önju okkar allar stundir og þar sem að við fórum án fjölskyldunnar að þá bjuggumst við við mikilli innilokun og takmarkaðri hjálp! EN vá hvað ég hafði rangt fyrir mér! þær voru duglegar á kvöldin að reka okkur Einar út þegar Anja var sofnuð, Ég bara veit í alvörunni ekki hvar ég væri í dag ef ég hefði ekki hann Einar minn!
Við Einar náðum að næra sambandið okkar alveg gífurlega og get ég sko sagt að þetta var besta ferð hingað til sem við höfum farið í og það dásamlegasta við þessa ferð er að við fundum lækningu fyrir hana Önju okkar og þakka ég góðum guði fyrir það! PÆLIÐI í því það vissi engin hvað var að, læknarnir gáfu henni viku í mesta lagi þegar ástandið var sem verst og nú horfi ég á Önju Mist án súrefnis að tína allar jólakúlurnar af jólatrénu okkur haha! nei í alvörunni svona gerist ekki á hverjum degi, svona veikt barn ætti í rauninni ekki að vera á lífi í dag.
Ég gleymi svo oft hvað við fjölskyldan höfum gengið í gegnum þar sem að við erum byrjuð að lifa svo eðlilegu lífi í dag og stundum þá held ég að ég reyni að gleyma þessum ótrúlega erfiða tíma sem var gjörsamlega að drepa okkur úr vanlíðan og áhyggjum! þetta er sársauki á eitthverju allt öðru leveli, Þetta er mesti sársauki sem ég hef á æfi minni upplifað,að þurfa að kveðja barnið sett er svo óeðlilegt og mannskemmandi og finn ég svo með þeim foreldrum sem hafa eitthvern tímann þurft að upplifa það!
Í philadelpu var Anja orðin það góð að hún fékk að fara út í fyrsta skiptið í 8 mánuði sem var ómetanlegt!
í júlí fékk hún svo að leika sér í grasinu út í garði alveg súrefnis laus vá þetta var svo fjarri öllu sem ég var búin að ímynda mér! þann 26 nóvember varð Anja 2 ára og þá var sko veisla! svo fengum við að halda uppá fyrstu jólin okkar saman því í fyrra var Anja Mist bundin við öndunarvél.
Gaman er að segja frá því að núna í desember fórum við og gáfum í samstarfi við Carters búðina í Hfj fyrirburaföt uppá vökudeild, Hún sem á Carters var svo dásamleg að gefa öllum fyrirburunum teppi og samfellur í jólagjöf svo gaf hún einnig fullt af fötum sem öll börnin geta notað sem deildin getur þvegið! og gaman að segja frá því að Anja fékk jóla kjólinn sinn þar ásamt skóm og peysu og ekki má gleyma áramóta hattinum!
Þessi áramót voru sú bestu hingað til þó svo ég hafi verið fár veik með streptakokka að þá voru þetta bestu áramót hingað til útaf því að ég fékk að halda uppá þau með fallegu stelpunni minni, eiginmanni og fjölskyldu.
Gaman er að segja frá því að núna í desember fórum við og gáfum í samstarfi við Carters búðina í Hfj fyrirburaföt uppá vökudeild, Hún sem á Carters var svo dásamleg að gefa öllum fyrirburunum teppi og samfellur í jólagjöf svo gaf hún einnig fullt af fötum sem öll börnin geta notað sem deildin getur þvegið! og gaman að segja frá því að Anja fékk jóla kjólinn sinn þar ásamt skóm og peysu og ekki má gleyma áramóta hattinum!
Hversu dásamlegir !
Þið getið fundið verslunina HÉR
Þessi áramót voru sú bestu hingað til þó svo ég hafi verið fár veik með streptakokka að þá voru þetta bestu áramót hingað til útaf því að ég fékk að halda uppá þau með fallegu stelpunni minni, eiginmanni og fjölskyldu.
Anja hefur tekið svo ótrúlegum þroska stökkum og framförum á þessu ári!
( hér fyrir neðan mun ég telja upp þær framfarir sem Anja hefur gert )
( hér fyrir neðan mun ég telja upp þær framfarir sem Anja hefur gert )
Framfarir Önju Mistar
- Anja LOSNAÐI af súrefninu á daginn
- Anja byrjaði að borða
- Anja byrjar að skríða
- Anja byrjaði á leikskóla
- Anja byrjaði að tala
- Anja tók sín fyrstu sker ( haha nú fer ég að skæla)
- Anja labbar yfir hálfa stofuna!
Framfarir mínar yfir 2016
- Ég ákvað markmið og stóð við það
- Ég tók af mér 17 kíló
- Ég lærði mikið inn á líkaman minn
- ég kynntist sjálfri mér á allt annan hátt
- Líkamlegur styrkur er allur að koma til baka
- Ég kynntist nýu fólki sem hafa góð áhrif á mig
Það sem að ég lærði
- Ég er mjög óþolinmóð og þrjósk að eðlisfari en Anja kenndi mér þolinmæði
- Ég lærði að ég get meira en ég held
- Ég lærði að með trú von og kærleika er allt hægt
- Ég lærði að treysta mömmu hjartanu ( í mörgum tilfellum veit mamman best )
- Ég lærði að fjölskyldan er það dýrmætasta sem maður hefur
- Ég lærði að sumt er bara ekki þess virði að pirrast útí
- Ég lærði að hamingja er hugarástand og það er allt undir mér komið hvernig dagurinn verður
- Ég lærði að morgundagurinn er ekki lofaður svo ég reyni að nýta dagin til fulls



















Ummæli