3 í aðventu
Gleðilegan 3 í aðventu nú fara jólin að ganga í garð og við litla fjölskyldan erum svo LÖNGU tilbúin fyrir okkar fyrstu jól saman heima! í tilefni þess ætlum við að halda jólin hátíðleg 3 saman þetta árið því jú Anja mun fá MIKIÐ af pökkum sem erfitt er að ferðast með svo er okkur búið að langa þetta lengi að halda okkar fyrstu jól búa til okkar hefðir og venjur, ég var alin upp við það að engin mætti opna pakkana fyrr en búið væri að vaska upp og eldhúsið orðið hreint, við systkinin áttuðum okkur fljótlega á því að þetta gengi hraðar fyrir sig ef allir hjálpuðust að. Hjá manninum mínum er hefð að bíða eftir jólaklukkunni hringja inn jólin á slaginu 18:00, þá gleðjast allir saman og setjast til borðs og borða dýrindis jólamat.
Við ætlum að taka þessar hefðir með okkur inní okkar eigin jól.
Ef ég á að segja eins og er að þá er ég að bilast úr spenning! Ég held ég viti ekki um neinn sem elskar jólin jafn mikið og ég haha.
Jólin mín snúast um það að eyða sem mestum tíma með fjölskyldunni minni og fólkinu sem ég elska spila og borða dýrindis jóla mat
Ég elska að undirbúa fyrir jólin Ég elska að skreyta og dúlla mér í eldhúsinu og hlusta á jóla lög! til dæmis í gær bjó ég til dýrindis dumles sörur bara útaf því að mig langaði til þess! ég elska jólasíldina og graflaxinn " ég gæti lifað á því ef ég á að segja eins og er" það er bara allt við jólin sem ég elska meir að segja innkaupin og jóla stússið sem við kláruðum fyrir soltnu síðan
Í dag dressuðum við okkur mæðgur upp og fórum á jóla ball hjá Neistanum, Það var svo dásamlegt að sjá Önju og Björgvin Unnar sameinast en þau dvöldu bæði í mjög langan tíma upp á barnaspítala hringsins! Við dönsuðum í kringum jóla tréið með jólasveininum og borðuðum góðan mat sem allir tóku þátt í að búa til við komum einmitt með dumle sörurnar sem ég bjó til í gær
Ég mæli svo með þeim þær eru auðveldar og svo brjálæðislega góðar
Njótið kvöldsins góða nótt og ég vil minna ykkur á að það eru einungis 12 dagar í jól
Guðbjörg Hrefna Árnadóttir
Guðbjörg Hrefna Árnadóttir









Ummæli