Ég er mætt aftur!
Eftir góða pásu er ég mætt aftur eins og stendur sit ég hér inná herbergi barnaspítalans þar sem Anja Mist er komin með flensu hún rauk uppí 40 stiga hita og brunaði ég beinustu leið með hana upp á barnaspítala. Anja er búin að vera mjög há í púls og hefur hún farið fyrir ofan 190 í púls,öndunin hennar var um 75 á mínútu svo þau lögðu okkur inn í nótt, Anja fór að sofa um 3 leitið og hefur hún verið meira og minna sofandi síðan þá nema hún vaknaði aðeins kl 8 til að fá sér vatnssopa! hún ætlar nefnilega að sofa þetta úr sér.

nýjustu tölur hljóma svona 157 púls í hvíld, 95 í mettun án súrefnis (sofandi) já ég tel það nú bara nokkuð gott, öndun er um 60 á mínútu og hitinn er komin í 37,5 svo gullinu mínu er að batna!
EN... að öðru ég hef ákveðið að breyta síðunni!! héðan í frá verður MEST um hollan mat og uppskriftir! en að sjálf sögðu koma fréttir af henni Önju minni inná milli! svo mun ég blogga um keppnis undirbúninginn þegar að því kemur en eins og þið vitið sem eruð með mig á snappinu: gudbjorghrefna að þá hætti ég við að keppa í módel fitness sem verður haldin í þessum mánuði ástæðan er einföld, það er pesta tími og það verður mikið um spítala innlagnir og andlega heilsan mín myndi hverfa! en Dóri Tul þjálfarinn minn og Rakel hjálpuðu mér með þessa ákvörðun og er ég ánægð, því í fyrsta lagi á þetta að vera gaman en þetta var orðið það stressandi að þetta var byrjað að valda mér vanlíðan! þá útaf svefnsleysi og samviskubiti ( samvisku bitið fólstk í því að geta ekki mætt á æfingu 2 á dag útaf því að ég var að sinna Önju minni "heilbrigt ? nei ég held nú ekki" en til þess eru góðir þjálfara til að leiðbeina manni í blíðu og stríðu nú æfi ég og undir bý mig fyrir mótel fitness keppnina sem verður haldin um páskana 2017 ég er ofboðslega spennt fyrir komandi tímum! og ætla ég að deila með ykkur árangurs mynd hér fyrir neðan þar sem 17 kíló frá því í janúr eru farin

Eigið dásamlegan dag kæru vinir
Guðbjörg Hrefna Árna dóttir
Guðbjörg Hrefna Árna dóttir

Ummæli