Sveppasósa bankastjórans
Þegar ég var lítil þá var haldið heilmikil veisla 2 í jólum þá komu allir saman og snæddum dýrindis lambalæri og með því og þar smakkaði ég einmitt eins og ég vil kalla hana Sveppasósu bankastjórans fyrst, sem bróðir pabba hann Sævar bankastjórinn á Ísafirði útbjó
Ég beið í heilt ár til þess að geta fengið mér þessa dýrindis sveppasósu þangað til ég lærði að búa til hana sjálf ( nema með smá tvisti) þessi sósa er gerð sirka 2 - 3 í mánuði hjá mér enda er ég ekki sú eina sem elska þessa sósu á heimilinu!!
Uppskrift
- 1 pakki sveppir
- 1 msk smjör
- 1 sveppateningur
- 500 ml rjómi
- 100gr piparost
- salt eftir smekk
- skvettu af hvítvíni
Aðferð
- Skerið sveppina gróft og steikið á pönnu ásamt smjörinu undir vægum hita ásamt hvitvíninu
- þegar sveppirnir eru orðnir létt steiktir bætið þið við hálfum sveppateningi og smá salti
- bætið við rjómanum og afganginum af sveppa teningunum, leyfið þessu að malla og ná suðu
- skerið piparostinn í litla teninga og bætið útí sósuna, leyfið þessu svo að malla og blandast!
svo saltið þið eftir smekk
- Mikilvægt er að smakka sósuna til
Guðbjörg Hrefna Árnadóttir






Ummæli