2 ára afmæli Önju Mistar

WÚHÚ 


Vá ég er svo meir og þakklát fyrir lífið og hvað það hefur gefið mér mikið! ég er svo meir yfir því hvað ég er svo endalaust þakklát fyrir fullkomna dóttur og yndislegan eiginmann ( já þetta verður væmin póstur) fyrir ári síðan var ekki víst hvort Anja okkar myndi lifa til 2 ára, Hún var svo veik.

Ég er búin að komast að því að lífið er eitt stórt kraftaverk.

Áður en Anja varð veik tók ég lífinu sem sjálfsögðum hlut, og ég var hætt að lifa allir dagar runnu í eitt og tíminn þaut áfram, eftir að Anja varð veik þá lærði ég að meta lífið, ég lærði að lifa í nútíð og njóta, haha þið getið ekki ímyndað ykkur hversu mikið auðveldara
það er að lifa í augnablikinu! Ég lít á þessa reynslu sem áminningu "þú átt bara eitt líf! gerðu það sem gerir þig hamingju sama, gerðu það sem þér þykir skemmtilegt sama hvað það er

Á hverjum degi færð þú nýtt tæki færi til að gera betur!

Afmælisdagurinn var FULLKOMIN, Það var sleginn upp heljarinnar veisla og yfir 20 mans komu! húsið var gjörsamlega troðið af fólki sem vildu gleðjast með okkur! Við erum nefnilega svo heppin að tilheyra svona stórri fjölskyldu sem vildu sko ekki missa af STÓRA deginum okkar, Anja fékk fullt af pökkum sem hún var lítið fyrir að opna útaf því að hún var svoooo þreytt eftir öll hátíðarhöldin enda fór hún snemma að sofa og hafði lítinn áhuga á því að vakna kl 07:30 til að skutla pabba sínum í vinnuna

Hér koma myndir úr veislunni 



( Uppskriftin af kökunni má finna á síðunni hennar Evu Laufeyjar )
Ætilega Dóru myndin fékk ég í allt í köku







Eigið dásamlegan dag!
( uppskriftin af tartalettunum er fyrir ofan )
Guðbjörg Hrefna Árnadóttir





Ummæli

Vinsælar færslur