Í dag hljóp ég fyrir Önju 

Í dag hljóp ég fyrir Neistann 



Það er alveg magnað að sjá allt þetta haf af fólki hlaupa fyrir það sem þeir trúa á , hlaupa fyrir það sem skiptir þá máli! Ég veit ekki hversu oft ég fór að grenja í dag ( gleði tár að sjálfsögðu) Ég mætti seint útaf biluðum bíl sem varð rafmagnslaus  á hverjum ljósum og það allaleið frá átak rétt hjá glæsibæ þar sem ég var að skutla Einari í vinnuna, Ég grét á leiðinni útaf því að þetta skiptir mig svo gríðarlega miklu máli!!  En ég hljóp samt án gagnana minna sem ég þurfti að ná í í lok hlaups, Ég veit hvernig það er að eiga barn sem þjáist, ég veit hvernig það er að eiga veikt barn sem þurfti að fórna öllu til þess að reyna halda sér á lífi svo það minsta sem ég gat gert var að hlaupa, hlaupa fyrir Önju, hlaupa fyrir neistann og ekki bara neistann bara fyrir öll veik börn.


OHH VÁA
Þetta er bara svo magnað !!
Fólk frá öllum heimshornum komið hingað til að hlaupa !!!
Þegar ég mætti fór ég að hágráta útaf því að hlaupið var byrjað og ég hélt ég myndi missa af því þá kom dásamleg kona til mín og tók utan um mig og sagði það skiptir ekki máli hversu langt þú hleypur bara að þú KLÁRAR og það gerði ég!!! og ég er svo stolt af sjálfri mér og svo til að bæta fyrir það sem ég hljóp þá hljóp ég heim til að ná 10 km


ÉG HVET ALLA SEM GETA AÐ TAKA ÞÁTT OG STYRKJA GOTT MÁLEFNI
Ég mun heita því að taka þátt í þessu frábæra hlaupi á hverju ári og veit ég að Anja mun einn daginn hlaupa með mér !!!!!! 

Takk fyrir mig 

HÉR getur þú styrkt Önju Mist allt sem safnast inná þennan reikning fer til Neistans sem er styrktarsjóður hjartaveikra barna


Guðbjörg Hrefna Árnadóttir 

Ummæli

Vinsælar færslur