Þegar huga fer að leikskóla

Nú var ég að sækja um fyrir Önju í leikskóla "Já ég veit LEIKSKÓLA" hversu óraunverulekt, þetta var svo fjarri raunveruleikanum fyrir 3 mánuðum síðan VÁ!! en jæja ég er búin að vera að spyrjast fyrir þar sem að þetta er mitt fyrsta barn og vil ég vera viðbúin. Hér fyrir neðan má sjá lista yfir hvað er gott að hafa meðferðis
  • Kuldagalli 
  • Úlpa
  • Pollagalli 
  • Stígvél 
  • Kuldaskór ( fyrir veturinn )
  • léttann jakka 
  • hlýa peysu og buxur
  • Létta húfu
  • þykkahúfu 
  • lambúshettu
  • nokkur pör af vetlingum (þunnum, þykkum og pollavetlingum)
  • nokkur pör af ullarsokkum
  • 2 auka sett af inni fötum buxur, peysa,bolur, samfella ( ef barnið notar slíkt) sokkar, sokkabuxur
Gott er að mæta með góða tösku á föstudögum þegar á að ríma hólfin hjá unganum sínum!
Eitt tips frá leikskólakennara " munið að merkja allar flíkur" 


Hér fyrir neðan má sjá hugmyndir af verslunum sem selja dásamlegan úti sem inni fatnað 


RR barnavörur 
RR Barnavörur er íslensk hönnun og er hún Telma sem á verslunina algjör fagmaður þegar það kemur að þægilegum og fallegum fatnaði, fötin eru gerð úr lífrænum bómull,Telma byrjaði að sauma fyrir son sinn hann Alexander, því henni fannst vanta meira af fallegum og þægilegum vörum sem barnið gæti hreyft sig og leikið sér í án þess að hamla hreyfingu, Vörurnar eru einstaklega teygjanlegar og vandaðar og gæti ég ekki verið sáttari með settið sem Telma gaf Önju, Það góða við fötin hjá RR barnavörur er að fötin vaxa með barninu

Ég sjálf hef alltaf verið í vandræðum að finna föt sem ég get sett spelkurnar undir, og ná skálmarnar yfirleitt aldrei yfir útaf því að það er bara ekki pláss og þá byrja spelkurnar að meiða hana! buxurnar frá RR barna vörum eru það teygjanlega og góðar að þær ná yfir spelkurnar og líður Önju vel í þeim það er það sem skiptir mig mestu máli þegar ég versla föt! 

RR barnavörur fá fult hús frá mér ekki bara fyrir fatnað heldur líka frábæra þjónustu !!!

Hér getur þú nálgast síðuna hennar RR barnavörur










Systrabönd 


Systrabönd voru svo æðisleg að gefa Önju húfu úr safninu sínu, húfurnar frá systrabönd eru svo dásamlega fallegar að orð fá því valla líst! vörurnar frá þeim eru einstaklega vandaðar og eru þær gerðar úr merino ull! húfurnar fást í flestum litum en biðtíminn hjá henni eru 2-3 vikur þar sem að húfurnar eru ofboðslega vinsælar. Það besta við þessa húfu fyrir utan hvað hún er falleg er að Önju klæjar ekkert undan henni og hún svitnar lítið sem ekkert! sem er kostur þar sem að Anja á það til að svitna mikið vegna lyfja og hraðari brennslu hún er líka svakalega heitfeng. Það má segja að ég hafi fundið drauma húfuna og er þetta ekki seinsata húfan sem ég mun fá frá þeim!! Litir fölbleik, ljósgrá, off white, dökkgrá, svört og brún.
Dúskur 
svörtu, brúnu og hvítu

Systrabönd eru ekki aðeins með húfur heldur

gerir hún einnig hárbönd úr 95-97% bómul sem eru svo dásamlega falleg í öllum litum og var hún svo elskuleg að láta eitt fylgja með! Þjónustan er alveg til fyrirmyndar, biðtíminn eru 3-5 dagar enda gerir hún þetta allt í höndunum



Litir
pastelbleiku, laxableiku, navybláu, gráu og svörtu og biðtíminn í þeim eru 3-5 dagar

Hér getur þú nálgast vörurnar Systrabönd




Litla kvef stelpan mín 


 Hárbandið frá systrabönd fallegt á litla krullukollinum mínum 



Name it 

Ég fékk þennan speisaða galla í name it Kringlunni og er ég svo ótrúlega ánægð með hann að ég mátti til með að sína ykkur fenginn! ég veit það fyrir víst að Önju Mist verði ekki kalt sem er einstaklega mikilvægt uppá bataferlið.


Duggadugg 

Þessi netverslun selur dásamlega handgerða kraga úr bómul og ull, Ég varð ástfangin af krögunum hennar Dagnýar sem er eigandi Duggadugg.
Kragarnir eru heklaðir og prjónaðir í dásamlegum litum! Vörurnar eru engu líkar og eru þær sérstaklega vandaðar og fallegar! kragana getur þú pantað fyrir börn og fullorðna

Það tekur 1-2 daga að búa til kragana ef það þarf að senda út á land þá tekur það sirka 2-3 daga.
DuggaDugg sendir FRÍTT út á land.

Hér getur þú nálgast síðuna hennar DuggaDugg







ÓO ég er að missa mig úr spenning, ég veit að Anja á eftir að vaxa og dafna en þá betur með krökkum í kringum sig sem hún getur lært af! það eru blendnar tilfinningar í gangi en ég veit að þetta er það besta fyrir hana.

Anja er svo ótrúlega fyndin og skemmtilegur karakter núna um daginn var hún að fylgjast með mér setja límband á litlu tásluna sína svo ég leyfði henni að prufa líka og hún situr þarna í góðar 15 mín að reyna að vefja þessu í kringum tásluna sína þetta finnst mér náttúrulega bara það alkrúttulegasta sem ég hef séð, svo er hún byrjuð að hugga mig ef ég meiði mig þá er hún komin um leið, hún er svo hlý og góð og með fallegt hjarta! og hún elskar okkur foreldrana svo mikið! og við hana.

Maður er bara komin með kusk í augað,barnið vex úr grasi og tíminn flýgur svo hratt að ég næ valla andanum, en ég er nú ekki eina mamman sem er að fara fylgja barninu sínu í leikskólann í fyrsta skiptið, það er alltaf erfitt að sleppa takinu, æii eftir allan þennan tíma langar mig samt bara að hafa hana heima það er bara ákveðin huggun, þessi tími sem ég á með dóttur minni er bara svo ómetanlegur og ég er kvíðin fyrir því að fá ekki að eyða öllum deginum með henni.


  

Guðbjörg Hrefna Árnadóttir

Ummæli

Vinsælar færslur