Anja Mist er komin inn í leikskóla!!
Þetta er að gerast gott fólk, Nú verð ég bara að fá að vera væmin!!
ÚFFF það er alls ekki langt síðan við fjölskyldan fórum til Philadelphiu í leit að lækningu fyrir Önju Mist. Þriðjudaginn 29. sept 2015 þegar Anja var 7 mánaða var fyrsta innlögnin hennar eftir að hún koma af vökudeild, Þetta byrjaði allt með smá mæði og þyngdar töpun, svo 5 nóv 2015 fékk hún lungnabólgu og þá fóru hlutirnir hratt niðurá við! Ég man hún ældi og þá fór greinilega helling af vökva í lungun og lungun byrjuðu að hraka verulega! 7 nóv fór hún fyrsta skiptið uppá gjörgæslu og notaðist hún þá við Hi flow sem er öndunar stuðningur sem blæs upp lungun eftir þessa gjörgæslu ferð hrakaði henni svakalega og voru stoppin niðurá barnadeild stutt, hún fór 3 í Barkaþræðingu og gáfu lungun sig svo á endanum, og dvaldi hún í Öndunar vél samtals í mánuð! 16 des var erfiðasti tími lífs okkar! Anja var að deyja og læknarnir voru ráðalausir hjartað og lungun voru að gefast upp vá ég bara græt við að skrifa þetta, Við vorum tekin á átakanlegasta fund lífs okkar, okkur var tilkynnt að Anja væri að fara og ætti hún nokkra daga eftir en þau vildu prufa eina aðgerð sem þeir vonuðust að myndu gefa okkur lengri tíma, ég man meiri segja ein af hjúkrunarfræðingunum grét. við buðum ættingjum að koma og sjá hana áður en hún fór í aðgerðina og þetta er í fyrsta skiptið sem ég sá pabba minn gráta.
Má sjá færsluna hér Erfiðasti dagur lífs okkar
Aðgerðin heppnaðist og byrjaði henni að batna en aldrei losnaði hún við súrefnið og var stutt í fallið, þannig 24 feb. 2016 vorum við send til Philadelphiu í leit að lækningu, Og viti menn lækning fannst, og komust þau að því að mjólk var að fara í lungun með hverri gjöf þannig eðlilega gáfu lungun sig á endanum! en það var lagað með Nissen aðgerð þá er þrengt á vélindanu og getur hún núna hvorki fengið vökva í lungun né ælt. 30 mars fengum við svo að fara HEIM til ísland með von um að það væri búið að lækna Önju þau sögðu að hún myndi losna af súrefninu eftir 3 mánuði á daginn sem stóðst hún er alveg komin af súrefninu á daginn!! en hún þarf en smá leka á nóttinni þegar hún kemst í fasta svefn!
Þessi mynd er tekin áður en Anja veiktis þarna er hún 6 mánaða
Þessi mynd var tekin eftir fyrstu spítala innlögnina
Þessi mynd var tekin þegar við vorum að byrja að búa uppá barnadeild
Anja ávalt hress þarna var hún á batar vegi en þarna gat hún ekki verið án súrefnis
Þessi var tekin fyrir stuttu í sumarbústaðar ferð erum búin að vera rosalega dugleg að ferðast um landið í sumar, við erum búin að fara í 3 súmarbústaðar ferðir og svo keyrðum við til Ísafjarðar um versló!! Þetta er búið að vera dásamlegt sumar!!
Múlaborg varð fyrir valinu
Nú er Anja komin inní leikskóla og núna er búið að ráða fólk sem mun fylgjast með henni þar sem að hún er með hnapp sem litlir ormar vilja of rífa í haha, og ef hún blánar ( sem er ekki að fara gerast ) þar sem að Anja er með litla fótafötlun er dásamlegt að hafa fylgdar mann sem getur örvað fæturnar hennar. Ég er ofboðslega þakklát, þegar Anja er búin að jafna sig á þessari pest ( bara smá hálsbólga og kvef ) þá mun hún byrja í aðlögun!!
ÞESSU BARNI ER ÆTLAÐ EITTHVAÐ STÓRT ÉG ER AÐ SEGJA YKKUR ÞAÐ !
Guðbjörg Hrefna Árnadóttir








Ummæli