Frábær byrjun á þessum yndislega júlí mánaði 

Við fjölskyldan fórum á ættarmót um helgina og vorum við rúmlega 200 afkomendur, og finnst mér alveg magnað að langamma mín hún Stella sem er 93 ára  hafi verið með okkur og vitnað alla afkomendur sína komna saman, þvílíkt ríkidæmi segi ég nú bara.

 Allt gekk ofboðslega vel Anja svaf alla leiðina á flúðir, svo þegar við vorum komin á staðin var Önju fagnað að sjálfsögðu og fannst henni það sko ekki leiðinlegt haha, svo var grillað svín og með því og svo var leikur til að koma hópnum saman, þessi ferð var alveg dásamleg og gat hún eiginlega ekki heppnast betur, ekkert betra en að fá að eyða tímanum með fjölskyldunni sinni.



 Hér má sjá fallegu langömmu mína sem við erum svo heppin að hafa 


Mæðgur í útilegu á flúðum 


Svo vorum við svo heppin að fá að eyða tímanum með fjölskyldunni hans Einars í dag og grilluðum við rif og útbjó Kristel systir Einars eina mögnuðustu gráð ostasósu sem ég hef smakkað!! Hún var rosaleg! ég er með nokkrar reglur og ein af þeim er margt er gott í hófi! ég get alveg sagt ykkur það að ég braut þá reglu þetta var ( out of this world) en að öðru við megum vel fagna því að strákarnir stóðu sig eins og víkingarnir sem þeir eru þeir taka þetta bara á næsta ári. eftir keppnina fórum við heim Anja alveg örmagna eftir öll öskrin. 


Fallega blómarósin mín 

En nú er komin hátta tími á mig og hlakka ég til rútínunar minnar ( sem ég funkera ekki án)
ég segi þetta gott í bili eigið dásamlegt kvöld kæru vinir.

Það er langbest að einbeita sér af því sem maður hefur en ekki af því sem maður hefur ekki þá ertu alltaf ríkur! það ert þú og fólkið í kringum þig sem skapar hamingjuna

Guðbjörg Hrefna Árnadóttir 

Ummæli

Vinsælar færslur