Chilli kjúklingasúpa 
fyrir 6 manns 

Þetta er ein af mínum uppáhalds súpum, Við hjónin eru búin að vera lasinn heima og vorum við orðin svakalega leið á því að hanga inni í þessu dásamlega sumarveðri! svo ég ákvað að búa til Chillu súpu sem rífur í! og ég get sko sagt ykkur það ÞESSI RÍFUR Í...


  • 1 msk ólífuolía
  • 2 gulrætur 
  • 1 grænpaprika
  • 4 hvítlauksgeirar
  • 1 rauðpaprika
  • 1/2 blaðlaukur
  • 1 laukur 
  • 1 rauður chilli eða 1 tsk chillipipar 
  • 5 kjúklingabringur
  • 1 dós tómatar í bitum
  • 2-3 teningar kjúklinga kraftur (fer allt eftir smekk)
  • 1/2 hálfurgrænmetis kraftur 
  • 2 - 3 tsk karrý
  • 1 tsk túrmerik
  • 2 lítrar vatn
  • 1 dós kókósmjólk
  • 3 góðar msk af chilli sósu ( fer eftir smekk)
  • 150 g rjómaostur 
  • salt og pipar eftir smekk
það er æði að strá 17% rifnum osti og 5% sýrðum rjóma
ef það er nammi dagur þá er tilvalið að setja doritos
aðferð 

  1. Þú byrjar á því að setja olíu og allt ferska grænmetið í pott og steikja undri vægum í sirka 5 mín 
  2. því næst bætir þú við vatninu, Karrý, túrmerik, kjúklinga kraft ,grænmetiskraf, salt og pipar 1 dós tómatar í bitum, Chilli sósan, chilli pipar 
  3. Svo skerðu kjúklinginn í bita og leyfir honum að malla í súpunni í 15 mín, 
  4. því næst setur þú rjómaostinn og kókosmjólkina
    Bragð bætið að vild 
Leyfið  súpunni  að malla í 30 - 40 mín  jafnvel lengur ( við vægan hita ) og svo er það bara bera fram og njóta

því lengri tíma sem þú notar í að búa til súpuna því betri verður hún.

Guðbjörg Hrefna Árnadóttir


.

Ummæli

Vinsælar færslur