Keppni í nóvember

Ný plön & ný markmið 



Núna á föstudaginn fórum við fjölskyldan upp í bústað á milli Hveragerðis og Selfossar í sæluna. Sólin er búin að skína á okkur mest allan tímann og eru menn orðnir frekar brunnir ( og brúnir ). Mettunar mælirinn hennar Önju bilaði á föstudagskvöldið svo nóttin var frekar erfið hvað svefn varðar þar sem við sáum ekki tölur var lítið sofið, á laugardeginum skruppum við Anja Mist í bæinn til að ná í mælirinn og að sjálfsögðu kíktum við á Dóra Tul og Rakeli sem stóðu vaktina í Leanbody.is í bæjarhrauni 2 í Hfj, Þar var ákveðið að ég myndi keppa í NÓVEMBER 2016 en ekki um páskana á næsta ári! ég verð að segja að ég er ansi stolt af þessum árangri á stuttum tíma! Ég fór úr 66 kílóum í 56,9 á rúmum fjórum mánuðum ég er ótrúlega þakklát fyrir einkaþjálfarann minn hann Dóra Tul sem er algjör snillingur og drepur mann næstum því í hverju setti hann er rosalegur! líkamlegi styrkurinn minn er búin að aukast allverulega á mjög stuttum tíma! fyndið hvað maður tekur ekki eftir því sjálfur  breytinguna á manni! þessvegna eru fyrir og eftir myndir alveg svakalega mikilvægar! Ég hef fundið minn stað í lífinu og hér á ég heima! og nú vil ég hjálpa öðrum að breyta lífi sínu til hins betra svo ég ákvað að fara í nám og er ég að læra einkaþjálfarann sem mér finnst brjálæðislega skemmtilegt " það sem manni finnst skemmtilegt gerir maður vel".










En að öðru við erum búin að njóta okkar alveg rosalega hér í sveitinni við erum búin að fá ótal heimsóknir sem er frábært og erum við búin að skemmta okkur konunglega og ekki skemmir þetta frábæra veður fyrstu sumarbústaða ferðina hennar Önju síðan hún kom útaf spítalanum, þessi ferð er búin að vera draumur í dós fyrir okkur fjölskylduna svo skemmir ekki fyrir að það er RISA STÓR hoppudína beint fyrir utan  gluggann okkar sem við erum búin að missa okkur á! nú eru tveir dagar eftir af þessari dásamlegu ferð og er hún Anja búin að fara á róló ,sitja í grasinu, sjá hestana , fara í POTTINN og fara í ótal gönguferðir. Þetta er nákvæmlega það sem við þurftum á að halda! Anja er búin að fá að anda að sér ferska sumar loftinu án stuðnings frá súrefnis kút! þessar minningar eru svo dýrmætar og ætla ég að varðveita þær ásamt billjón myndunum sem við tókum!


Dýrmæt augnablik ber að varðveita!


Guðbjörg Hrefna Árnadóttir





Ummæli

Vinsælar færslur