Gleðilegan mánudag 

Ég er með alveg æðislega tilfinningu fyrir þessum yndislega mánudegi sem og vikunni! Er hægt að hefja vikunna betur en með Em Ísland vs England ?við fjölskyldan ætlum í grill heim til tengdó og ætlum við gjörsamlega að fagna eins og vitleysingar!!! ég verð að viðurkenna að ég er ekki hrifinn af fótbolta en þetta elska ég, hvernig við íslendingar stöndum saman í að styðja strákana okkar og hvetja þá áfram! ég verð að segja að ég gæti ekki verið stoltari af því að vera Íslendingur!!! 

í tilefni dagsins ákvað ég að skelli inn uppskrift af æðislegri mexíkanskri kjúklinga súpu! 
sem þú getur leikið þér með ! ég og maðurinn minn erum algjörir súpuperra og er vanalega súpa einu sinni í viku ef ekki oftar á þessu heimili !!! Þar sem að við einar erum á gluteinlausu fæði er um að gera búa til fjölbreytta fæðu sem allir í fjölskyldunni hafa gaman og gott af! 

Mexíkósk kjúklinga súpa
  • 3kjúklingabringur 
  • smá sletta olivolia
  • salt
  • 1 paprika skorinn smátt
  • 1/2 blaðlaukur skorinn smátt 
  • 1 hvítlauksrif
  • 1 líter vatn
  • 1 kjúklingkraftur 1/2 kjötkraftur 1grænmetiskraftur 
  • karrý
  • 1 dós saxaðir tómatar 
  • 4 msk Thai chillisauce SRIRACHA
  • 3msk tomato paste
  • 100 gr rjómaostur 

það er æði að strá 17% rifnum osti og 5% sýrðum rjóma
ef það er nammi dagur þá er tilvalið að setja doritos.





Aðferð 

Steikið grænmetið uppúr ólífuolíunni bætið síðan vatninu kröftunum,karrýinu ,söxuðu tómötunum, Chilli sósunni og tomato paste úti og leyfið því að malla þangað til að suðan er komin síðan megið þið skera kjúklinginn niður og bæta honum úti og leyfa honum að malla þar næst bætið þið við rjómaostinum en í skömmtum, svo er hún tilbúin fyrir ykkur að njóta 



Guðbjörg Hrefna Árnadóttir







Ummæli

Vinsælar færslur