Nú er sko komið að færslu 

Það er langt síðan ég skrifaði hér inn, Það er bara búið að vera brjálað að gera!! Anja ... hún er bara almesta kraftarverk sem ég hef séð, Það er ekkert sem getur sigrað hana EKKERT ég er bara orðlaus yfir framförum hennar síðan við komum heim ! Hún fór úr barni sem við áttum að kveðja því hún átti   ekki að lifa vikuna af! í stelpu sem leikur sér á gólfinu ÁN SÚREFNIS! ég sit hérna í sófanum og stari á hana "bara hvernig er þetta hægt" Þetta er allt saman ofar mínum skilning, ég meina hún er búin að sigra dauðann oftar en einu sinni og hún er ekki orðin 2 ára. 


Hér er smá bútur úr færslu sem ég skrifaði deginum eftir að læknarnir tóku okkur á erfiðasta fund lífs okkar!

miðvikudagur, 16. desember 2015

"Í gær var klárlega erfiðasti dagur lífs míns, Læknarnir tóku okkur inná stofu og útskýrðu stöðuna, Fósturæðin hjá Önju hefur opnast í hjartanu og í kjölfarið af því er hún komin með lungnaháþrýsting og sögðu læknarnir að staðan er orðin tvísýn og spurningin væri hversu langan tíma hún ætti eftir, svo það var ákveðið að hún myndi fara í þræðíngu til að loka fósturæðinni í hjartanu eins og staðan var í gær að þá var hún of veik en hún ætti ekki langt eftir ef hún yrði ekki framkvæmd fljótlega, Erum gjörsamlega í rústi og ég er komin á þann stað þar sem að hjartað mitt getur ekki meir! Þessi kvöl er óbærileg."


Það er verulega átakanlegt að lesa þetta! því sem tíminn líður gleymir maður ( þökk sé guði) í dag man ég valla eftir þessum tíma þetta var allt í móðu og geðshræring mikil! ég verð að segja að ég er með kökkinn í hálsinu við að skrifa þetta, því þessi tími var rosalegur en vá hvað ég breyttist sem manneskja (til hins betra) Lífið er gjöf og henni ber að njóta!  morgun dagurinn er ekki lofaður og þú veist ekki hversu mikinn tíma þú átt með fjölskyldu og vinum, eftir þetta heyri ég í foreldrum mínum daglega sem ég gerði ekki áður, ég reyni að nota allan tíma sem ég hef með Önju og manninum mínum einfaldlega útaf því að ég elska þann tíma og þar líður mér best.

Framfarir Önju eru gríðarlegar 
Hún dregur súrefniskútinn og mjólkurdæluna á eftir sér því stelpan er byrjuð að SKRÍÐA aðeins öðruvísi en börn gera flest útaf fótunum en hún tekur hermanna skriðið á þetta haha! ég hleyp á eftir henni með kútinn, hún er reyndar komin með framlengingar snúru á kútinn enn það þýðir lítið þar sem hún flækir sig alltaf í henni! hún mettar fínt í leik en þegar hún fer á magann þarf hún auka súrefni sem eldist svo bara af henni! hún þarf einnig súrefni þegar hún sefur, Anja er mikið af súrefninu á daginn og sefur hún stundum á þess hún er byrjuð að skilja mikið og tala smá ! Hún er búin að fara út  í göngu túra hitta krakka og leika sér í grasinu ( sem hún var reynda skít hrædd við ) ég er alls ekki eins bundin heima því ég get tekið hana með mér ef ég þarf að fara eitthvert, lífið er að verða eðlilegra og eðlilegra hjá okkur litlu fjölskyldunni. 

Anja er byrjuð að borða meira en hún gerði og mun hnappurinn vera tekinn eftir eitthvern tíma, Nýa uppáhaldið hennar er banana og jarðarberja kex stangir hún hakkar þetta í sig hahaha!








Ég lærði að hugsa um sjálfan mig sem ég klárlega gleymdi eftir að Anja fæddist, reyndar hef ég ekki þurft að hafa mikið fyrir þyngdinni þegar ég var yngri ég átti erfitt með að þyngjast svo ég borðaði bara það sem mig langaði, Eftir að Anja fæddist byrjaði ég að þyngjast og það hratt mér var bara alveg sama ! ég leyfði mér að borða og hreyfa mig ekkert og þar af leiðandi þyngdist ég! ég er búin að ná af mér rúmum 9 kílóum og er ég að nálgast 57 kíló ( ég var 66 kíló ) ég hef alltaf verið létt eða um 52 sem er bara mín þyngd ég er beina smá og lágvaxinn. 

Leanbody.is hjálpaði mér að koma mér á þann stað sem ég er á núna og einnig Dóri einkaþjálfari sem er snillingur! 




Ég minni á snappið mitt fyrir ykkur sem viljið fylgjast með



Guðbjörg Hrefna Árnadóttir

Ummæli

Vinsælar færslur