Laxaborgari

Laxaborgari

Sumarið er komið og grillararnir mættir á stjá þar á meðal maðurinn minn ! 
Ég sé yfirleitt bara um að búa til matinn en hann sér um að grilla hann.

Laxaborgarinn er einn besti borgari sem ég hef smakkað

hann er óvenjulegur og bragðmikill borgari sem allir sem kunna að meta mat ættu að prufa!

Ég sjálf nota bragðskinið mitt þegar að það kemur að hversu mikið magn ég set af hverju, ég hef gert. 




Laxarborgarinn 

2 laxar bitar ( ég fæ mína í Víðir þá eru þeir í kubbum og þægilegt að vinna með þá ) 
1 egg
40 gr haframjöl 
(stundum minna stundum meira fer eftir stærðinni af laxinum svo fer þetta mikið eftir smekk
borgaranir meiga ekki verða of blautir því þá haldast þeir ekki saman- ef ykkur finnst borgarinn of blautur þá um að gera að bæta meira af haframjöli).
Hvítlaukur 
piparrót fer eftir smekk 
Salt og pipar 

Saxið laxinn niður og færið hann yfir í skál, blandið saman hráefnunum og mótið í borgara 
Grillið í 3-4 mín á hvorri hlið.


Chilimajónesi

4 góðar sprautur af kínversku mæjónesi ( sem fæst í Hagkaup) 
1 tsk Sambal Oelek ( fæst í hagkaup) 
1/2 sítróna
















Sætur laukur 


1 Rauðlaukur 
Flórsykur eftir smekk
Hvítvíns edik eftir smekk 
















Gott er að hafa klettasalat jafnvel mangó með Laxaborgaranum, smekkur hvers og eins er misjafn svo um að gera að prufa sig áfram og ögra bragðlaukunum. 

Eigið góðan dag

Guðbjörg Hrefna Árnadóttir



Ummæli

Vinsælar færslur