Að velja sér viðhorf !

Að velja sér viðhorf !


Mér finnst alltaf jafn áhugavert þegar fólk spyr mig! hvernig ferðu að því að vera svona jákvæð ?
Hmm hvernig get ég ekki verið jákvæð! Ég hef allt .

Það er svo skemmtilegt hvernig viðhorf mitt ræður úrslitum í öllu sem ég tek mér fyrir hendur og sem mestu skiptir hvort mér líði vel. Ég get valið að líða ömurlega og vorkennt sjálfri mér og trúað því að ég geti aldrei gert neitt útaf leiðinlegum eða erfiðum aðstæðum! Ég get líka valið hinn möguleikann og valið að líða vel og sjá það góða og jákvæða í því sem ég tek mér fyrir hendur hvað svo sem það er því jú ég get lofað þér því að útkoman verði góð. Það er undir okkur komið hvernig við tökumst á við daginn! það er svo margt sem getur haft áhrif á viðhorf okkar, það eru flest allir sem lenda í áföllum á lífsleiðinni þar á meðal ég, ég neita að lifa í sorg og reiði, ég neita að leyfa þessari lífsreynslu að taka völdin og stjórna mínu lífi því það er ég sem ræð það er ég sem skapa mitt eigið líf og mína eigin framtíð í stað þess að vorkenna sjálfri mér og spyrja "AFHVERJU ÉG ? "afhverju ekki ég ? afhverju ætti þetta að lenda á eitthverjum öðrum? ég tel okkur foreldrana vera heppinn að eiga hana Önju og ég tel hana heppin að eiga okkur! við vorum valinn í þetta verkefni og verð ég að segja að hann valdi vel! 



Hér má sjá Ömmu mína og lang ömmu Önju.


Það er langbest að einbeita sér af því sem maður hefur en ekki af því sem maður hefur ekki þá ertu alltaf ríkur! það ert þú og fólkið í kringum þig sem skapar hamingjuna! 

Eigið góða nótt kæru vinir.

Guðbjörg Hrefna Árnadóttir






Ummæli

Vinsælar færslur