Einn svona fyrir háttinn

Einn svona fyrir háttinn

Við fengum að fara heim á laugardaginn seinasta og voru ansi blendnar tilfinningar um það, ásamt gríðarlegri spennu þar sem að við höfum ekki búið heima í rúma 8 mánuði ( hvaða klikkun er það samt) þessi tími hefur gjörsamlega flogið áfram, ég verð nú að segja að meðan Önju gekk vel að þá var ansi notalegt að búa uppá barnadeild 22E allir svo yndislegir og get eg sagt að ég hef eignast nokkrar góðar vinkonur og Anja líka. Dvölin var bæði gleðileg og líandi eiginlega jöfn blanda af báðu, Nú þegar við erum komin heim verð ég að segja að ég sakna þeirra svolítið, ég átti ótrúlega góða tíma þarna þó ótrúlegt megi virðast, það var afneituninn sem skemmdi svo mikið fyrir mér um leið og ég sætti mig við aðstæður þá byrjaði ég að njóta augnablikana sem ég á með fallegu Önju minni :) og það auðveldaði mikið.



Það gengur ótrúlega vel hér heima, Anja þarf alltaf minna og minna súrefni, hún stendur sig vel í spelkunum og er farin að vera örlítið duglegri við að standa, hún er farin að borða betur þetta er allt tekið í litlum skrefum hér! (það eru nefnilega litlu hlutirnir í lífinu sem skipta svo gríðarlegu máli) hún er farin að renna sér á bleika kagganum sínum. Loksins fékk langamma að kíkja á hana og sátu þær saman og spjölluðu, amma flautaði lítið lag og Anja reyndi að gera slíkt hið sama semsagt myndaði stút og blés ( Bara það sætasta sem ég hef séð) hún fær að taka pásur af súrefninu og gengur það vel, Svo núna bíðum við bara eftir sumrinu svo við fáum nú að komast aðeins út í göngu túra, Vitiði það ég get ekki beðið eftir því að fara með Önju í húsdýragarðinn hún á eftir að missa sig,

Anja og langamma

Rútínan komin á gott ról! 
Allt sem við gerum á dagin snýst í kringum planið hennar Önju ( lyf, mjólk,púst,örvun) og erum við að aðlaga lífinu okkar að því, það var lítið um svefn fyrstu næturnar sem er nú ósköp eðlilegt þar sem að  þetta er nýr staður nýtt umhverfi, en þetta er sko allt að koma. Mín rútína er komin sterk inn aftur, Dagbókin á sínum stað, þar plana ég daginn minn enda væri ég týnd án hennar
Ég er orðin það háð dagbókinni minni að ég er byrjuð að horfa á myndbönd MÁ SJÁ HÉR hvernig þú getur gert dagbókina þína sem fallegasta. Mæli klárlega með því að kikja á ÞESSA síðu þar getiði fundið ótrúlega fallegar dagbækur.


Klukkan orðin 00:00 svo það er best að koma sér upp í rúm
Góða nótt kæru lesendur!

Guðbjörg Hrefna Árnadóttir




Ummæli

Vinsælar færslur