Batavegur

Batarvegur

Anja er búin að taka svakalegum framförum síðan við komum heim( sérstaklega líkamlega ) 
en að sjálfsögðu fær hún ekki frið og þurfti hún að fótbrotna. Hún var í göngu spelkunum og náði hún að hlamma sér á fótinn, hún þjáist af bein þinningu vegna langrar legu og stera sem gerir það auðveldara fyrir beinið að brotna, læknirinn hafði aldrei séð svona brot á lærlegg á svona litlu barni. En Anja stendur sig svo vel og tekur hún þessu með svo miklu jafnaðargeði! það er aðdáunarvert að sjá hvernig hún tekst á við þetta eins og ekkert sé.

Við fórum uppá spítala í dag svo hún gæti fengið ónæmislyfin sín og gekk það bara vel við vorum þar frá 09:00 til 16:00, Þórður læknir kíkti á hana og var hann bara ánægður með stelpuna.


Hún er en á súrefni ( 0,3-0,5 lítrum) enda erum við að taka hana hægt og rólega af því svo það verður nú ekki afturför góðir hlutir gerast hægt er mitt mottó,hún er byrjuð að drekka úr glasi og finnst henni peru skvísur ágætar ,hún elskar Dóru landkönnuði og dansar hún og klappar ákaft yfir því.

Hún gerir daginn fyrir mér þessi elska og er ég svo endalaust heppin að hún skuli hafa valið mig fyrir mömmu.

Þar sem ég fer bráðum í háttinn þá ákvað ég að skella í smá færslu fyrir svefninn svo nú segji ég bara Góða nótt 




Guðbjörg Hrefna Árnadóttir


Ummæli

Vinsælar færslur