Lífið hér í Philadelphiu

Lífið hér í Philadelphiu

Ég vil byrja á því að biðjast afsökunar á því hvað það hefur tekið mig brjálæðislega langan tíma í byrja að blogga. Jæja fyrsti dagurinn var nokkuð skrautlegur og fórum við uppí rúm um 08:00 leitið en blessunarlega séð sofnaði Anja fljótt eftir allan asaganginn. Næstu dagar snérust um snúa sóla hrynginum hjá okkur fjölskyldunni við og gekk það svona ljómandi vel, fyrstu dagana vorum við frekar uppgefinn, en svo leið ekki á löngu og við byrjuðum að njóta og þreytan fór að skolast úr okkur! Anja er búin að fara í smá túbu aðgerð þar fékk hún túbu í staðin fyrir hnapp sem tengist þá beint í þarmana hún er að vísu búin að missa 1 og hálft kíló en hún er byrjuð að metta betur, 

Smá tilfinninga rússíbani

Við fengum þær fréttir fyrir helgi að þau væru að fara að útskrifa Önju útaf spítalanum og myndi hún fara með okkur á Mc donalds hótelið og vera þar með okkur fram að Nissen aðgerðinni, Af eitthverjum ástæðum ætluðu þau að reka okkur útaf Mc donalds húsinu og banna okkur að koma með Önju inná hótelið þau gáfu okkur þá ástæðu að Anja væri ekki að fá daglega meðferð á spítalanum svo við mættum ekki vera þar, en svo talaði Einar við Mc donalds hótelið í New Jersey og þau sögðu að það væri minsta mál að færa okkur þangað en þar sem að það var biðlisti og þetta mun lengra frá spítalanum að þá vorum við í frekar vondum málum, við fáum sennilega aldrei að vita afhverju hún ákvað að vinna svona sem mér finnst alveg óskiljanlegt þar sem að þau voru tilbúin til að henda okkur út með veikt barn án þess að vita hvort að við höfðum sama stað eða stað sem að hentar fyrir Önju okkur, Ísland var reyndar mjög fljótt að bregðast við og sögðust þau ekki skilja svona vinnu brögð og sögðust þau ætla að sækja okkur á mánudeginum þar sem að það var aldrei á planinu að senda okkur af spítalanum án heimahjúkrun þar sem að hennar veikindar saga er frekar óhugnanleg, en sem betur fer að þá reddaðist þetta allt saman og sem stendur hafa þau hætt við að senda hana útaf spítalanum svo við fáum að vera á Mc donalds hótelinu, Við fáum að vita meira eftir helgina hvernig þetta fer allt saman. 

Leiðréttur afmælis dagur

Anja hefði átt að fæðast 12 mars 2015 en í stað þess lét hún sjá sig þann 26 nov 2014 á 24 viku, Það eru ótrúlegar framfarir sem Anja hefur hlotið og unnið hörðum höndum með þjálfurum og fjölskyldu, Hún er svo heppin að eiga fullt af fólki í kringum sig sem elskar hana svo afskaplega heitt!! Anja er meiriháttar karakter, Hún er ótrúlegur húmoristi og finnst henni hún sjálf alveg ofboðslega fyndin, hún er ákveðin , sterk , ljúf&góð og er hún mesti kúrari sem ég þekki ( fyrir utan pabba hennar)
Hún er orðin mun sterkari í löppunum og getur hún staðið í smá tíma með stuðning, hún er reyndar byrjuð á þeim ósið að urra á fólk og svo kvíslar hún inná milli nú er hún byrjuð að segja dada og gerir það óspart en þegar henni vantar mömmu þá heyrist hátt og skírt mamma.




Guðbjörg Hrefna Árnadóttir


Ummæli

Vinsælar færslur