Gleðifréttir

Gleðifréttir

Þennan póst vil ég tileinka Einari manninum mínum.

Þessum harðduglega manni sem lætur ekkert stoppa sig, að geta ekki er ekki til í hans orðabók, hann kemur sér áfram með bjartsýni og gleði sem fyllir líf okkar Önju, hann er einn hjartahlýjasti maður sem ég þekki og er hann alltaf til í að hjálpa öllum og biður hann aldrei um neitt í staðin, hann er fyndnasti gaur sem ég veit um (stundum er erfitt að vera nálægt honum bara svo ég næ andanum aftur) og ekki má gleyma hversu fjallmyndarlegur drengurinn er, ég er svo ótrúlega heppin að hafa nælt mér í þennan fola enda var ekkert annað í stöðunni  þar sem ég hef verið ástfangin af þessum kappa síðan ég var í 5 bekk. 

Dagurinn í dag er merkisdagur og mun hann breyta miklu fyrir okkur fjölskylduna! Hann Einar þarf ekki að hugsa um það að fá ekki  sjá Önju þroskast og dafna hann fær að vera hér hjá okkur, ég sit hér með tárin í augunum við að skrifa þetta, Þetta er loksins BÚIÐ! það er svo mikil gleði sem fylgir þessum degi og er ég gjörsamlega að springa! Ég get rétt svo ímyndar mér hvernig Einari líður ! en í kvöld verður sko fagnað!!!



Besti pabbinn 


Ég elska þig svo mikið ástin mín 

TIL HAMINGJU 

Guðbjörg Hrefna Árnadóttir

Ummæli

Vinsælar færslur