3 dagar í heimferð
30 mars komum við aftur heim eftir rúmar 5 vikur hér úti
30 mars komum við aftur heim eftir rúmar 5 vikur hér úti
þetta hefur svo sannarlega verið lærdóms rík ferð og kenndi hún mér að ALDREI gefast upp, berjast og berjast því það er nákvæmlega það sem við gerðum á hverjum einasta degi, Þetta líf er svo ótrúlega fallegt og yndislegt bara ef þú leyfir því að vera það, í staðin fyrir að vorkenna sjálfri mér stóð ég upp og gerði eitthvað í málunum,það sem hún hefur kennt mér er að vera sterk hún hefur kennt mér að berjast þangað til að þú getur bara ekki meira en þá berstu bara en meira hún hefur kennt mér að meta litlu hlutina í kringum mig og vera ánægð með það sem ég hef í staðin fyrir að velta mér endalaust uppúr því sem ég hef ekki, í rauninni hef ég allt sem ég hef nokkurn tímann dreymt um.
Önju hefur farið ótrúlega fram hún dansar eins og engin sé morgundagurinn, hún er dugleg að hrósa sjálfri sér og klappar hún mikið og hátíðlega fyrir sér. Hún er orðin eins og páfagaukur hún er orðin svo dugleg að herma eftir og upp á halds orðin hennar þessa dagana eru nei, Mamma og Dadda (pabbi), Anja er komin með standspelkur og stendur hún sjálf þegar hún styður við eitthvað, Anja hefur getað verið af súrefninu 4 kl tíma á dag og gengur það ofboðslega vel og er hún að hætta á því það tekur tíma en það mun takast. við erum ofboðslega spennt yfir framhaldinu og lítur allt út fyrir það að við munum eiga bjarta framtíð með gullinu okkar!
Við erum gjörsamlega að rifna úr stolti.

Í desember náði ég gjörsamlega á botninn útaf veikindum dóttur minnar, ég var orðin verulega þunglynd og brotin og inná milli fann ég bara ekki neitt, en í janúar ákvað ég að breyta um lífstíl, ég ákvað að breyta algjörlega um mataræði og fór ég úr rusl fæði í sykur og gluteins laust fæði sem var drullu erfitt ef ég á að segja eins og er en hver sagði að þetta yrði auðvelt? ég byrjaði í ræktinni eins og brjálæðingur sem var en þá erfiðara og eftir fyrsta skiptið langaði mig bara að hætta en ég ákvað að gefa þessu séns og viti menn þetta bar árangur og nú get ég ekki hætt! ég hætti að reykja (ég hef verið reyklaus í 3 mánuði) og ég breytti gjörsamlega hugarfarinu mínu og mikið rosalega hef ég náð langt síðan þá, Núna hef ég misst rúm 6 kíló og er ég komin í þá þyngt sem ég er ánægð með en núna þarf ég bara að byrja á því að byggja upp vöðva massann minn á ný.
En hér vil ég sýna að þú getur hvað sem er í hvaða stöðu sem er, eina sem þarf er rétthugar far.
Ég vil, ég get, ég skal.
Ég vil, ég get, ég skal.
Ég er búin að leita mikið til Leanbody enda snillingar og vita þau allt um næringu og hvernig er auðveldast að grennast og byggja upp vöðvamassa enda þarf maður að velja vel þegar kemur að því að næra líkamann þinn.
Þú getur nálgast síðuna þeirra HÉR
Guðbjörg Hrefna Árnadóttir

Ummæli