Seinasta færslan.
Seinasta færslan
Þá er allt orðið reddí brottfara dagur á morgun og spennan í hámarki kl er núna 23:52 og fer ég bráðum að skríða uppí rúm. Dagurinn í dag er búin að vera stórkostlegur það var haldið smá kveðju partý fyrir okkur sem erum að fara til Bandaríkjanna á morgun, barnadeildin hérna á spítalanum hefur reynst okkur svo vel! hafa gert allt fyrir Önju okkar og er ég þeim alveg ofboðslega þakklát, Morgundagurinn lítur svona út, Ég vakna kl 9-10 fer eftir því hvenær daman vaknar, svo fer ég uppáflugvöll með leigubíl kl 14:00 til að tékka okkur inn svo mun ég bíða í uppá flugvelli þar til við fljúgum sem verður um 17:00, Einar kemur með Önju í sjúkrabílnum sem mun keyra beint þar sem flugvélin er þar fara þau um borð, við munum fljúga með Icelandair, ég er örlítið stressuð fyrir fluginu útaf því að við vitum ekki alveg hvernin Anja mun bregðast við því en það er allt tilbúið ef eitthvað skildi koma uppá ( Sem ég veit að gerist ekki ) við munun lenda í New york um 6 leitið á þeirra tíma sem verður viðbrigði fyrir okkur þar sem að það er svo mikill tíma munur en þetta venst fljótt.
Ég ætla ekki að hafa þetta lengra í bili næsta færsla verður frá Bandaríkjunum
Guðbjörg Hrefna Árnadóttir



Ummæli