VIÐ ERUM AÐ FAR TIL FÍLADELFÍU
LOKSINS.

Anja mín var orðin alveg lýgilega góð en núna fyrir 4 dögum byrjaði henni að hraka örlítið aftur
Hún gera það nákvæmlega það sama og hún gerði uppá gjörgæslunni þegar hún lá þar sofandi í öndunarvél nema það er ein breyting hún þolir þetta mun betur en hún gerði, hún er komin í 1 lítra í súrefni en var komin í 03-05 lítra svo er hún byrjuð að taka föll þar sem að mettunin fer niður í 70 og svo fer hún hægt upp aftur og stundum hangir hún í 85 og þá hefur hún þurf 4 lítra af súrefni, einkennin sem hún er að sína eru blóðtæjur og kögglar í ælu, útbrot á fótum og hiti ( smá kvef )og svo aukin mettunar föll til allra hamingju er hún að þola þetta MUN betur en hún gerði áður, en þá er það eitt sem veldur áhyggjum þar sem að þau héldu að þetta væri bara eitthver veiru sýking en svo er greinilega ekki þannig nú vitum við ekki hvort þetta eru köst sem tilheyra lungnasjúkdóminum hennar eða þá að þetta sé eitthver pest sem að er ómælanleg. Það sem að er næst á dagskrá er ferð til Bandaríkjanna og verður hún á lungnadeild barna á spítalanum í Fíladelfíu það verður STÓR munur þar sem að við erum ekki með starfandi barnalungna lækni hér á íslandi að vera komin allt í einu á sér lungna deil fyrir börn ? vá ég bara get ekki beðið.


Erum svo stolt af fallegu guðsgjöfinni okkar !!!!

Challenges are what make life interesting; overcoming them is what makes life meaningful



Ummæli

Vinsælar færslur