Frábær byrjun á 2016 

5 jan átti ég afmæli og var maðurinn minn svo yndislegur að koma mér á óvart með keilu og út að borða á kitchen and wine og í framhaldinu af því sagði hann mér að hann væri með einn annan glaðning fyrir mig sem var 1 nótt á hóteli í fallegri náttúru á selfossi 3 rétta kvöldverður reiðtúr hjá ís hestum ég á bara ekki til orð hvað ég á frábæran mann sem vill svoleiðis allt fyrir mig gera og svo var hún gunna svo yndisleg að passa Önju á meðan við vorum í burtu! en við förum semsagt á föstudaginn og ætlar mamma mín að passa litla ömmugullið sitt. Ég get ekki beðið svo er pæling að taka smá hring á þingvelli og fara í nátturu lauginni þar ég man hvað það var dásamlegt þegar við fórum þarna seinast vatnið alveg fullkomið og nátturustemmingin svo skemmtileg.




En nú að öðru læknarnir eru undrandi yfir árangri hennar og er hún í 0,7 í súrefni sem er ótrúlegt þetta er eitthver smá leki sem hún þarf og talaði læknirinn um að þessi bárátta sé nú senn á enda þú að allar þessar meðferðir sem Anja hefur hlotið hafa sýnt svo svakalegan árangur og framfarir, Svo nú er hún einungis á bata vegi.
Við fórum á smá rúnt í dag í vagninum og var hún frekar hissa á þessu öllu saman, hún er búin að vera frekar óróleg þar sem að hún er að taka 6 tennur í einu !!! þannig þá eru 8 tennur komnar svo það er ekki skrítið að blómið sefur ekki á næturnar. Hún er komin á nýtt svefnlyf svo að hún sofi nú betur svo ætlum við að færa stera skammtin til kl 19:00 svo þá ætti hún að sofa betur.

Bæklunar læknirinn kom við í dag og kíkti á litlu fæturnar hennar Önju og var hún ánægð með þá þó svo að hún hafi verið haldinn sofandi í rúman mánuð að þá hefur það ekki haft nein áhrif á fæturnar sem er frábært, svo útaf því að hún er byrjuð að ná að sitja aftur að þá er hún að fara að fá standspelkur það er svo mikill partur af þroskaferlinu svo í rauninni hægðist voða lítið á fyrra plani svo nú heldur hún bara áfram að styrkjast. 


Ég er bara ekki trúa því hvað þetta er að heppnast vel hjá okkur!!

Anja mun ná að komast heim sem eru bestu fréttir sem ég hef fengið á æfi minni!


Ummæli

Vinsælar færslur