Dásamleg ferð
A miðvikudaginn 5 jan átti ég 23 ára afmæli og þá fór ég og maðurinn minn út og gerðum vel við okkur fórum í keilu og út að borða, en í framhaldinu af því kom hann mér svo á óvart hann var þá búin að kaupa gistingu á hótel Íshestar, reiðtúr og 3 rétta kvöldverður fyrir 2 algjört yndi það sem ég elska þennan mann.
Æii það var svo yndislegt að komast aðeins útúr bænum og pústa smá alveg nauðsynlegt eftir svona langa innilokun að gera eitthvað skemmtilegt og sleppa sér aðeins, við byrjuðum á því að fara á hestbak hjá Eldhestum og var það geðveikt, Ég reyndar grenjaði úr hlátri mest allan tímann þar sem að hesturinn hans Einars var svo óþekkur, Einar var oft næstum dottinn af baki og svo rásaði hesturinn 2 bara eitthvert með hann ég vissu ekki hvert ég ætlaði ég hló svo mikið, svo að því loknu innrituðum við okkur inná hótel Eldhestar sem var ótrúlega skemmtilegt og kósy ( Bestu rúm sem ég hef sofið í fá prik fyrir það) inná herbergi opnuðum við eina hvítvínsflösku svo kl 19:00 var 3 rétta dinner og þar hélt fjörið áfram , Við fengum okkur graskerssúpu & brauðhringi með hátíðar síld í forrétt, lamb með gratíneruðum kartöflum og rjómalagaðri soðjurta sósu í aðalrétt og svo að lokum súkkulaði souffle vá hvað þetta var æðislegt!. Eftir matinn fórum við í pottinn og nutum samveru hvort annars og tímdum valla að fara að sofa" eins og hvað fyrri nóttin var erfið "
(Anja er komin af öllum fráhvarfa lyfjum).
En talandi um Önju litlu þá er hún núna komin af fráhvarfsmeðferð og er hún búin að vera mjög örg og líður henni frekar illa, hún lítið búin að sofa og vaknaði á 15 mín fresti í alla nótt og er hún búin að þurfa 0,3 meira í súrefni sem er alls ekkert til að tala um það er svo lítið, svo er verið að taka af henni steranna hún var komin með 3 og nú er hún komin niður í 1 svo vonandi nást þeir alveg af henni þar sem að það er alls ekki holt fyrir neinn að vera lengi á sterum en það er álag svo hún mun kanski þurfa aðeins meira súrefni á meðan hún er að venjast því, (sterarnir eru til þess að minka bólgur í lungunum) annars er voðalega lítil breyting hún er alltaf hress og kát og gengur bara mjög vel hjá okkur núna.
En við segjum þetta í bili
En við segjum þetta í bili
Góðar stundir.





Ummæli