2016 byrjar með stæl !!
Góð byrjun á góðum degi, Anja fór í ljósmyndartöku í morgun og gekk hún vel án súrefnisgleraugna ( við þurtfum að taka þau af vegna þess að þetta var passa mynd þar sem að við erum búin að fá SAMÞYKKI frá spítalanum í Fíladelfíu í Bandaríkjunum)!!! og náði hún að halda uppi mettun meðan á myndartökunni stóð, svo í framhaldinu af því var hún sett á venjuleg súrefnisgleraugu og kom hún öllum á óvart þar sem að súrefnið var allt í einu of mikið fyrir hana!! hún byrjaði í 4 lítrum svo 2 svo að lokum hálfum!! hún er á svo örlitlu súrefni að það telst varla svo er hún í 97-99 í mettun og það er svo erfitt að lækka meira þar sem að það er voða lítið til að lækka !! Við erum í Skýunum er valla að trúa þessu.
Þó við vitum lítið um þennan sjúkdóm hennar vitum við þó eitt hún kemur alltaf til baka.


Ummæli