JÓLA KRAFTARVERK

Í gær var fjölskyldunni minni afhent 768,500 af Önnu svövu, Lóu & Rós Anna Svava stofnaði styrktar reikninginn fyrir Önju Mist mína og var honum deilt inná Góða systir sem stofnuð var af  Þórunni Antoníu.

Er oft búin að setjast við tölvuskjáinn og kem eitthvern vegin engu frá mér, Ég get varla lýst því með orðum hversu mikið þakklæti ég ber í hjarta mínu, kæru systur ég er YKKUR ævinlega þakklát, það sem þið eruð búin að gera fyrir okkur fjölskylduna er ÓMETANLEGT, Mér finnst ég ekki ná að koma þessu nógu vel frá mér hversu þakklát ég er. Þið eruð fallegar sálir með gott og hlýtt hjarta.

Bara takk,Takk kærlega fyrir að vera til staðar.

ÞIÐ ERUÐ YNDISLEGAR <3

Þegar dóttir mín verður eldri mun hún fá að vita allt um ykkur kæru systur, Hveru örlátar þið eruð og hversu mikið ykkur þykir vænt um hana <3

Guðbjörg Hrefna Árnadóttir

Ummæli

Vinsælar færslur