Erfiðasti dagur lífs míns 


Í gær var klárlega erfiðasti dagur lífs míns, Læknarnir tóku okkur inná stofu og útskýrðu stöðuna, Fósturæðin hjá Önju hefur opnast í hjartanu og í kjölfarið af því er hún komin með lungnaháþrysting og sögðu læknarnir að staðan er orðin tvísýn og spurningin væri hversu langan tíma hún ætti eftir, svo það var ákveðið að hún myndi fara í þræðingu til að loka fósturæðinni í hjartanu eins og staðan var í gær að þá var hún of veik en hún ætti ekki langt eftir ef hún yrði ekki framkvæmd fljótlega, Erum gjörsamlega í rústi og ég er komin á þann stað þar sem að hjartað mitt getur ekki meir! Þessi kvöl er óbærileg, En vitiði það hún Anja mín er fighter og er hún langt frá því að fara að gefast upp. Nú er búið að ákveða að aðgerðin verður á mrg, og eru meirilíkur á að hún lifi hana af eftir að hún fékk lyfin  við lungnaháþrystinginum, Ég vona svo innilega að þessi aðgerð kaupi okkur en meiri tíma til að reyna að komast að því hvað er að hrjá hana Önju mína læknarnir halda því fram að hún sé eina í heiminum sem ber þennan sjúkdóm svo hún er að skrifa sína sögu sjálf við fylgjum bara á eftir. Anja er svo ofboðslega dugleg og þrátt fyrir allt þetta sem er lagt á hana glittir í smá bros. Mér léttir við því að hún er ekki eins viðkvæm fyrir því að opna smá augun og teygja aðeins úr sér. til allra hamingju er búið að lækka stuðninginn við öndunarvélina sem hún er barkaþrædd niður í þannig að lyfin eru greinilega að virka.

Ég er búin að ákveða það að aðgerðin gangi vel á morgun og bið ég góðan guð um að varveita hana.

kæru vinir ég vil biðja ykkur um að biðja fyrir Önju okkar að aðgerðin heppnist og færi ljós í lífið hennar á ný.

Kveikjum á kertum fyrir Önju í kvöld 





Ég þrái ekkert heitar en að fá Önju mína mína til baka 

Guðbjörg Hrefna Árnadóttir 

Ummæli

Nafnlaus sagði…
elsku vina
Unknown sagði…
Bið fyrir Önju í kvöld og óska þess að aðgerðin gangi vel á morgun <3 <3 <3. Ljós og friður. Silja
Nafnlaus sagði…
Langaði bara að segja gangi ykkur vel stelpan mín fæddist með þetta og fór svo í opna aðgerð. Ég grét í marga daga en sem betur fer eigum við svo góða lækna að þetta fór allt vel:)
Nafnlaus sagði…
Góði guð vertu með Önju litlu á morgunn og alla daga þú hefur gert svo mörg krafta verk ,láttu nú eitt kraftaverk rætast til önju ég veit að þú getur læknað hana með þínum krafti máttur þinn er svo sterkur að við treystum á að henni batni bið þig að blessa Önju og hjálpa henni vertu yfir foreldrum hennar og gættu þeirra einnig öllum sem þekkja þau í heilaga nafni AMEN
Unknown sagði…
Bið fyrir fallegu dóttur ykkar ❤❤❤ guð veri alltaf með ykkur i jesu nafni Amen ❤❤❤
Unknown sagði…
Bið fyrir fallegu dóttur ykkar ❤❤❤ guð veri alltaf með ykkur i jesu nafni Amen ❤❤❤
Unknown sagði…
Ég mun biðja fyrir litla ljósinu ykkar ♡♡♡
Unknown sagði…
Ég kveiki á kerti í kvöld og bið fyrir ykkur. Sendi ykkur mínar hlýjustu hugsanir og styrk.
Ambiggist12 sagði…
Ég kveiki á kertum í kvöld fyrir hana og hugsa hlýtt til ykkar ❤ brátt kveðjur til hennar❤
Kveðja Anna
Ásgeir sagði…
mun hugsa til ykkar og gangi ykkur rosalega vel <3
Og að sjálfsögðu munu kerti loga í hennar nafni í kvöld <3
Unknown sagði…
Ég mun kveikja á kerti fyrir ykkur og biðja til guðs, vona að aðgerðin gangi vel. Hlýjar hugsanir og ást og kærleikur <3
Unknown sagði…
Við munum kveikja á kerti fyrir fallegu dóttir ykkar og sendi ykkur hlýjar hugsanir og adgerdin takist vel guð gefi ykkur styrk❤
Unknown sagði…
Við munum kveikja á kerti fyrir fallegu dóttir ykkar og sendi ykkur hlýjar hugsanir og adgerdin takist vel guð gefi ykkur styrk❤
Unknown sagði…
Bið fyrir elsku litlu hetjunni i kvöld og trùi þvi og vona að henni gangi vel à morgun <3 guð gefi ykkur styrk a þessum erfiðu tìmum <3
sagasteins sagði…
Ég mun kveikja á kerti og hugsa til ykkar í kvöld kæra fjölskylda! Það á ekkert barn að þurfa að ganga í gegnum svona mikla erfiðleika! Guð veri með ykkur á þessum erfiðu tímum! ❤️
Unknown sagði…
Bið fyrir þessari hetju og kveikt verður á kerti. Megi Guð vera með ykkur og gangi ykkur vel ❤️
Nafnlaus sagði…
Mun kveikja á kerti hvert kvöld þar til hún er komin heim í ykkar faðm.
Nafnlaus sagði…
Lífsins ljós (Vögguvísa) PDF Prenta Tölvupóstur
Bubbi - Í 6 skrefa fjarlægð frá Paradís
Í 6 skrefa fjarlægð frá Paradís 2005
Lag og texti: Bubbi Morthens
Lífsins ljós litla hjarta
þín bíður veröldin bjarta
óskin flýgur full af þrá
falli aldrei skuggi á
þitt hreina hjarta.

Lífsins ljós guð þér gefur
frið og ró þegar þú sefur
óskin flýgur full af þrá
alla ævi munt þú sjá
ást guðs þú hefur.

Lífsins ljós
lífsins ljós
alla ævi munt þú sjá
ást guðs þú hefur.

Lífsins ljós litla hjarta
þín bíður veröldin bjarta
óskin flýgur full af þrá
falli aldrei skuggi á
þitt hreina hjarta.

Lífsins ljós guð þér gefur
frið og ró þegar þú sefur
óskin flýgur full af þrá
alla ævi munt þú sjá
ást guðs þú hefur.

Lífsins ljós
lífsins ljós
alla ævi munt þú sjá
að ást guðs þú hefur.
Nafnlaus sagði…
Gangi ykkur ótrúlega vel ❤️❤️
Nafnlaus sagði…
Gangi ykkur frábærlega vel.
Unknown sagði…
Skapandi Guð! Anda elsku þinni yfir þessa fallegu stúlku. Lát lækningarmátt Jesú bróður hennar fylla hverja frumu litla líkamans. Umvef hana verndandi hulu heilags anda svo ekkert geti veikt hana eða hindrað bata. Ég kalla á erkienglana að standa vörð um hana frá öllum áttum og veita læknum og hjúkrunarliði blessun og styrk til að vinna af árverkni og í kærleika. Kraftmikli Guð! Ver með foreldrum og fjölskyldunni allri og veit þann styrk sem þau þarfnast til að heila litla ljósbarnið sitt. Guð, ég bið um heilun í Jesú nafni! Amen.
Unknown sagði…
Æ Guðbjörg mín og Einar, leiðinlegt að heyra þetta. Vonandi hefur aðgerðin gengið vel. Hugsa sterkt til ykkar, Margrét E af Vökudeildinni
Unknown sagði…
Bið fyrir fallegu stelpunni ykkar <3
Unknown sagði…
Gangi ykkur vel, sendi á ykkur hlýjar hugsanir og góða strauma
Með bestu kveðju Björg Sigmunds :*
Unknown sagði…
Þessi ummæli hafa verið fjarlægð af höfundi.
Unknown sagði…
Með kærleik í hjarta, bið ég Almættið um, að umvefja fallegu og duglegu Önju litlu, með guðdómlegri heilunar, kærleiks, og alheimsorku sinni og veiti henni vernd, styrk og stuðning, að takast á við veikindi sín og aðgerðina. Gangi ykkur vel elskulega fjölskylda ♥ Bata og blessunarkveðjur
Unknown sagði…
Elsku fjölskylda, ég bið góðan guð um að hjálpa fallegu stúlkunni ykkar í gegnum þetta. Baráttukveðjur! ❤️❤️
Nafnlaus sagði…
Baráttukveðjur �� Guð styrki ykkur í baráttunni og gefi ykkur von um bata og gleðileg jól.
Unknown sagði…
Ég kveikji á kerti og sendi ykkur ljós ❤️
Nafnlaus sagði…
Eg kveiki a kertum og mun bydja fyrir henni. Barattukvejur og megi fallega stulkan ykkar hun Anja berjast gegnum þetta eins og hetja <3 Gud veiti ykkur styrk!!

Vinsælar færslur