Tilfinningaríkur dagur að baki

Þá er mjög svo tilfinningaríkur dagur á enda & er búin að vera grenjandi meira og minna í allan dag (gleðitár) Vegna þess eins og margir vita að þá fékk ég smá heimsókn í dag uppá barnaspítala. Ég og mamma vorum semsagt búnar að mæla okkur mót kl 13:00 og hún einblíndi rosalega á að ég yrði að vera komin niður akkúrat kl 13:00 útaf því að mamma þurfti að mæta í vinnu kl 15:00 og ég keypti þetta náttúrulega allt saman og datt ekkert annað í hug en að ég væri bara að fara að hitta mömmu mína, svo kem ég niður á slæinu 13:00 og ég var lengi að átta mig á því að þær væru að koma að hitta mig samt voru þetta flest allar stelpurnar sem ég þekki í bumbuhópnum, Ég var bara " Oh þvílík tilviljun að þær allar séu hér á kríla hitting" eins fáránlegt og það hljómar ég var svo ekki að kveikja!, En svo afhenti hún Sunna mer semsagt ávísun uppá 130þúsund krónur fyrir hönd Marsbumbu hópsins vá þessi kærleikur sem ríkir í þessum hóp er rosalegur, Við erum bara allar svo ótrúlega góðar vinkonur og náðum allar svo vel saman strax , Ég er svo ótrúlega heppin að hafa fengið að kynnast þessum frábæru stelpum sem standa svo þétt upp við bakið á mér " Stelpur þið eruð alvöru vinkonur". Ég er búin að vera að reyna að koma mér niður hérna eftir daginn í dag ( sem gengur ekki vel ) við erum bara á bleiku skýi hérna. Ég kann svo ótrúlega að meta það sem þið gerðuð fyrir okkur í dag.
Við erum ekki ævinlega þakklát.
Takk stelpur Takk.

Þetta er ekki búið nei, við fengum úr genaprufunni í dag og hún er ekki með neinn litningar galla allt kom mjög vel út. svo að lokum að þá fengum við íbúðina sem okkur dreymdi um hérna í miðbænum ALLT ER AÐ GANGA UPP 

ÞÖKK SÉ YKKUR KÆRA FÓLK.

 

Guðbjörg Hrefna Árnadóttir  

Ummæli

Vinsælar færslur