Lungnabólga mætt í hús 

Anja fékk hita og varð rosalega ólík sjálfum sér, Heimsóknin heim entist frekar stutt eða um 2 daga þar sem að hún var byrjuð að falla í mettun um hádegið á sunnudeginum, Erum komin með heimahjúkrun sem að tekur mettun hjá dömunni daglega sem er extra þægilegt þar sem að hún er ekki með mettunarmæli heima né súrefni, En já hún semsagt kom við og athugaði mettunina hjá Önju og var hún þá um 88-90 í mettun ekkert svakalega lágt en samt nóg svo í þokkabót var hún með hita og beinverki og mikinn hósta, Þegar við komum uppeftir fengum við að fara strax inn enda fastagestir hér á barnaspítalanum "haha" svo var tekið hana í blóðprufu og lungamyndatöku og þá kom í ljós að lungnabólga væri mætt á svæðið sem er náttúrlega ekkert grín fyrir litla prinsessu með lungnasjúkdóm. Anja var lögð inn og fórum við strax í einangrun og vorum við þar í 3 daga virðist vera stuttur tími en my god hvað þessir 3 daga voru lengi að líða.

 Allt kom vel úr veiru strokinu svo við erum laus úr einangrun því að lungnabólga er ekki smitandi en mikið var það nú ljúft .En jæja núna erum við búin að vera hér í 4 daga og eru dagarnir hér svolítið farnir að renna saman í eitt enda vissi ég ekkert hvaða dagur væri í morgun. Það er var tekið svitapróf hjá Önju litlu í dag til að sjá hvort hún væri nokkuð með slimseig sjúkdóm en svo var ekki og fögnum við því. Þetta er búið að vera viðburðar ríkur dagur og ég sjálf hefði vel þegið áfallahjálp ef mér hefði boðist, Anja mín ældi uppúr sér sondunni ekkert svosem athuga vert við það slíkt gerist en litla dúllan varð svo reið þegar það var verið að taka af henni allt heila klabbið sem var framan í henni og til að toppa þetta allt saman féll hún svo svakalega í mettun alveg niðrí 26 ég gjörsamlega fraus meðan þær voru að stússast í henni til að koma henni upp vá þetta var ef ég á að segja alveg eins og er hræðilegt! 



Anja Mist og Afi 

Þá er þessi dramatíski dagur á enda & nýr og bjartur dagur framundan fullur af framförum

Við bjóðum góða nótt 


Guðbjörg Hrefna Árnadóttir

Ummæli

Unknown sagði…
Þetta hefur verið átakanlegur dagur!! Gangi ykkur vel flotta fjölskylda, hugsum til ykkar.

Vinsælar færslur