Fyrirburadagurinn 17 nov,
Þá er alþjóðlegidagur fyrirbura að ganga í garð og fögnum við litla fjölskyldan því, Þetta er algjörlega lífsreynsla sem ég klárlega hefði ekki viljað missa af en að sjálfsögðu hefði ég vilja hitta þig í fyrsta sinn undir öðrum kringum stæðum en þá hefða það bara ekki verið þú elsku Anja mín !

Ég man hversu stolt ég var þegar ég sá þig drekka fyrst úr litlum bómullar pinna sem minnti helst á eyrnapinna og saugst hann svo ljúft, ég man eftir fyrsta ml sem þú fékkst í sonduna þína,ég man eftir litlu piano puttunum sem náðu valla að grípa utan um litla puttann minn vegna þess að hendin þín var svo agnar smá, Ég man eftir fyrstu þyngdar aukningu þinni hvert gramm skipti máli,ég man eftir fyrsta skiptinu sem þú opnaðir augun þann 10 des og ég man fyrsta skipti sem ég fékk þig í fang það var eins og þungu fargi væri létt ofan að manni, Ég man hvað mér fannst ég heppinn að fá að fylgjast með þér vaxa og dafna á hverjum degi við fengum bara aðeins fleiri stundir saman sem ég elska og kann svo að meta. En að sjálfsögðu man ég eftir erfiðu stundunum sem gjörsamlega stjórnuðu líðan og tilfinningunum mans en góðu stundirnar voru bara svo miklu fleiri og eru þær mér ofboðslega kærar.
Ég elska þig svo ólýsanlega mikið og er ég svo lánsöm og blessuð að hafa gengið í gegnum þetta erfiða ferli með með þér skref fyrir skref þú gjörsamlega fullkomnar mig og mitt líf og ég gæti hreinlega ekki lifað án þín.
Hlakka til að sjá þig vaxa og dafna og þetta ferli sem við erum að ganga í gegnum í dag verður brátt bara minning fortíðarinnar.
Þín Mamma
Guðbjörg Hrefna Árnadóttir

Ummæli