Endalaus óvissa 

Anja er búin að vera að vesenast með mettunina síðan í gærkvöldi og er sífelt fallandi allir læknar horfa hvern á annan og vita ekkert hvað er að gerast fyrir litlu stelpuna mína, Ég er gjörsamlega niðurbrotin og veit hreinlega ekki hvernig ég á að haga mér akkúrat núna, Anja var færð yfir á hi-flow sem að blæs upp lungun á meðan að þessi blessaða lungnabólga gengur yfir, um 3 leitið gerðist eitthvað við blásturinn í hi-flowinu og hrakaði hún allaleið niðri 34 og þarna hélt ég að hún væri bara að fara og Einar greyið var þarna einn með henni í fangi vegna þess að ég var í svo miklu uppnámi að ég var send fram, allir læknarnir börðust við að koma henni upp þar sem að hún hélt áfram að blána og rólega var hún að missa meðvitund að þá þurfti að blása í litlu fallegu rósina mína og svo á endanum hófst þetta nú allt saman. Anja er nú svo dugleg að ég trúi ekki öðru en að hún muni sigrast á þessari lungnabólgu,




Guðbjörg Hrefna Árnadóttir 


Ummæli

Vinsælar færslur