Allt er í ferli
Anja er orðin mun betri frá seinasta pósti og líður henni oftast vel og er vanalega alltaf hress og kát, Hún er sérstaklega ör vegna steranna sem hún er á og æðir hún frá einu í annað sem er ótrúlega fyndið þar sem hún minnir mig svo mikið á mig. En þá að heilsunni hennar lungna sérfræðingurinn teiknaði upp mynd af lungunum hennar Önju og sagði hann þau ekki falleg að sjá en eru þau veik eftir barkaþræðingu sem var sett upp eftir fæðingu og aukasúrefnis sem hún fékk í kjölfarið, Hann segir að hann sér þetta oft hjá fyrirburum en það sem að skilur Önju frá þeim er það að þessi einkenni byrjuðu að koma frammeftir 8 mánaða lífaldur ( sem mér finnst svolítið skrítið vegna þess að í raun og veru er ekki víst hvort að hún hafi verið að metta vel heima þannig það er ráðgáta)

En semsagt lungna pípurnar eru fallnar saman á nokkrum stöðum og safnast mikið slím fyrir í þeim og af eitthverjum ástæðum eru hárin sem eiga að íta slíminu aftur upp ekki að gera það sem þau eiga að vera að gera þannig að þá þenjast lungnablöðrurnar meira og meira út með hverjum andardrætti og þar sem að slímið er svo mikið að þá kemst loftið ekki til baka aftur þannig að mjög takmarkað súrefnisflæði er að fara inn í lungun hjá litlurósinni.
Svo er hjartað líka að trufla hana því að neðra gatið er að stækka með henni sem er frekar óvenjulegt því að með tímanum á það að lokast en í hennar tilfelli gerðis það ekki en þetta er eitthvað tengt því að hún fæddist svona mikið fyrir tímann þannig að of mikið blóðflæði er að fara í lungun og það er sko ekki að gera neitt betra fyrir Önju mína svo þeir eru að tala um að senda hana í opna hjarta aðgerð en þar sem að hún er svo veik í lungunum að þá er þetta mjög áhættu samt og eru þeir ekki að taka þessu létt. Við fáum að vita um leið og gena greininginn kemur í ljós en það er sáralitlar líkur að það komi eitthvað slæmt útúr því segja þeir.
En nú að öðru
Útaf veikindum Önju þurfum við að flytja í annað húsnæði og þar sem að við vorum að flytja alla búslóðina yfir í vogana þar sem við fundum æðislega íbúð í sömu blökk og mamma mín ásamt systkinum og fósturpabba búa svo þetta var bara algjör draumur í dós, en núna þurfum við að flytja á höfuðborga svæðið nær spítalanum ef að eitthvað gerist að sögn barnasérfræðings hér á deildinni svo nú erum við í strangri íbúðar leit og gengur hún frekar hægt fyrir sig þar sem að leigumarkaðurinn hér er nú ekkert til að hrópa húrra fyrir. en við verðum semsagt að vera búin að flytja í annað húsnæði fyrir útskrifun, ég trúi ekki öðru en að þetta takist nú hjá okkur erum með frábæra félagsráðgjafa sem vilja allt fyrir okkur gera.
En ég ætla að segja þetta gott frá barnaspítalanum bili.
Lifið heil.
Guðbjörg Hrefna Árnadóttir

Ummæli