Útskrift

Þá er komið að því Anja er búin að vera án súrefnis í 2 sólahringa og eru þau búin að útskrifa hana af Barnaspítala hringsins, Anja er búin að þyngjast um 730 grömm síðan seinni innlögnin var þann 29 sept. Læknarnir eru ánægðir að þessi dramatíska pústmeðferð er að virka á hana og er hún með aðeins alvarlegra (BPD) en þau héldu í byrjun þannig að hún er komin á góðan púst kokkteil sem hún fær 6 sinnum á dag, svo er hún einnig byrjuð að borða meira eða um 900 grömm af SMA mjólk,svo maginn er að stækka.


Við hlökkum öll rosalega til að komast heim til okkar og sjá hana baby litlu sem er búin að vera svoldið ein heima svo það verður gott að komast heim.

Ég vil þakka fyrir Barnaspítala hringsins fyrir fljót viðbrögð og góða þjónustu
Alltaf jafn hlýlegt og gott að koma til ykkar

Guðbjörg Hrefna Árnadóttir

Ummæli

Vinsælar færslur