Innlögn
Anja er búin að vera að ströggla við innöndun þegar hún grætur og hætti mér nú að lítast á blikuna þegar hún blánaði svona svakalega í kringum munninn í eitt skiptið, við áttum pantaðan tíma í dag í almenna vigtun uppá barnaspítala hringsins þar prófuðu þær hana í leik og þá féll hún niður í 81 í súrefnismettun og var svo lengi að koma sér upp aftur eftir sirka 5 mín var hún komin í 91 í mettun en yfirleitt þegar að barn fer undir 90 í súrefnismettun að þá þarf viðkomandi auka súrefni. Svo hér erum við komin aftur í innlögn en fengum jú 6 daga pásu.Anja fór í segulómun og komu þær vel út nema bara það sama og seinast (BPD) en það var hækkað Flixotide sem er stera púst þá fær hún 2 um morgnana og 2 á kvöldin svo var bætt einu pústi (Ventolin) við en hún fær það úr vél. Anja var svæfð áður en hún fór í segulómunina en hún vaknaði akkúrat þegar það var verið að óma hana svo brosti hún bara.
Strumparnir mínir
En meira síðar
Ég kveð héðan af barnaspítala hringsins í bili
Guðbjörg Hrefna Árnadóttir





Ummæli