Heimsókn á spítalann
Anja mætti í innlögn núna á þriðjudaginn 29 sept, Vegna þess að hún á erfitt með að þyngjast, Erum núna búin að vera hér í 3 nætur og fer mjög vel um okkur, Litla drekkur vel en finnst maturinn hér ekkert svakalega góður, svo það er svolítið basl. Anja er með (BPD) Sem er tímabundinn lungnasjúkdómur (BPD) Til þess að ég útskýri þetta nánar að þá þýðir þetta í raun og veru að hún hafi verið með óþroskuð lungu og þurfti á súrefni að halda lengur en í 24 daga ( Uppá vökudeild) Þetta kemur stundum fyrir fyrirbura. Við erum heppin að þetta er als ekki alvarlegt og mun þetta eldast af henni með tímanum þar sem þetta er ekki alvarlegt, Hún fær púst með sterum 2 á dag.
Litla stein sefur eftir mikil átök hún varð alveg öskur eið þegar við reyndum að pústa hana en þetta gekk.
Hún mun dvelja hér framyfir helgi og líklegast lengur, Þar sem að hún er ekki að þyngjast (eða nærast) eðlilega,Það er líklegast að útaf (BPD) að þá verður hún móð og þá er hjartað náttúrulega að pumpa meira og þá er þetta í rauninni eins og ef við myndum taka verulega á því í ræktinni og þá erum við náttúrulega að brenna en þetta gerist alltaf þegar hún er að drekka Anja verður svo móð og pirruð og þá finnst henni erfitt að drekka, En þegar hún er vel hvíld og glöð að þá þambar hún pelann á 5 mín. Hún er rosalega dugleg en hún þarf að vera búin að þyngjast vel áður en við sleppum héðan út ! Svo hér munum við búa næstu daga.
En Þá kveðjum við í bili -
Guðbjörg Hrefna Árnadóttir



Ummæli