Góðan daginn
Þá er Anja Mist komin heim af 10 daga dvöl á barnaspítala hringsins. Anja fékk sondu og verður hun með hana um tíma! Þangað til að maginn er orðinn stærri ! Hún er búin að æla alveg heiftarlega vegna sondunnar en samt á sama tíma er hún búin að þyngjast um 430 grömm á viku sem er rosalegt Þessi sonda er að gera kraftarverk, Loksins er þetta basl buið.
Anja er byrjuð að fatta mátt sondunnar og er byrjuð að íta pelanum frá sér þegar hún sér hann, Já það er frekar þæginlegt að þurfa ekki að gera neitt og fá endalausa þjónustu haha, En þar sem að hún er alltaf södd að þá er ekkert skrítið að hún vilji ekki drekka þannig á meðan að hún er í sondu"aðlögun" að þá gef ég henni 20 ml á 15 min fresti þangað til að hun er búin með 130 en svo reynum við að minka það niður í 10 mín og svo frammvegis , Þar sem að sondan ertir magan þá kastar hún upp oftar, En talandi um ælur Anja kastaði upp sondunni sinni í gærkvöldi svo ég þurfti að taka hana úr sem þíðir spítalaferð í bæjinn í dag,
En Anja er orðin mun sterkari líkamlega séð og er stúlkan byrjuð að sitja SJÁLF í hálfa mínutu í senn sem eru gríðalegar frammfarir! þar sem að hún var bara eins og sulta áður fyrr haha hún bara lak niður þannig mér brá soldið þegar við vorum að æfa okkur í því að sitja í gær og hún bara sat og brosti!
Guðbjörg Hrefna Árnadóttir



Ummæli