Einn dagur í einu
Nú eru fullt af rannsóknum komnar af stað og fengum við lækna heimsókn áðan og höfðu þau áhyggjur af því að þetta væri ekki (BPD) útaf því að vægt (BPD) ætti að lagast með tímanum, heldur eitthvað annað svo við hjónin lifum svoldið í óvissu núna, Ég er jákvæð og held í vonina að þetta er eitthvað sem er hægt að halda niðri eða jafn vel laga.
Anja mín heldur áfram að vera duglega litla stelpan okkar og fögnum við hverjum framförum sem koma, það er búið að hækka stera lyfin og pústið sem hún fær yfir daginn vegna þess að þau virka svo skammt á hana en það sem skiptir máli er að það að þau eru að virka á lungun hennar og það bendir til að þetta sé alfarið bara í lungunum en ekki eitthvað annað undirliggjandi.Þetta kemur allt í ljós á endanum.
Meira síðar
Guðbjörg Hrefna Árnadóttir



Ummæli