Dagurinn í gær var dagurinn sem allt breyttist
Þann 24 Okt komumst við að því að við værum að fara að eignast litla stelpu, en þessi dagur sem átti að vera ekkert nema hamingja breyttist í helvíti ef ég má svo segja, Þarna komumst við að því að ekki væri allt með feldu með hana Önju okkar, Læknarnir töldu hana ekki hugað líf og ef hún myndi þá lifa af hvernig lífi myndi hún þá lifa? , Ég er svo endlaust stolt af mér og manninum fyrir að hafa ekki farið eftir ráðum læknana, þar sem að þá ætti ég ekki fallegu Önju mína í dag, Það sem þessi stelpa hefur gefið mér í dag er hreint út sagt ótrúlegt, Ég er þakklát fyrir hversu sterkt samband ég á með manninum mínum og í öllum lægðum var hann þarna til að hífa mig aftur upp. Við hjónin erum svo sannarlega blessuð með guðsgjöfina okkar hana Önju ,
Og þetta smáræði sem Anja er að ströggla við er ekkert í samanburði við neitt af því sem læknarnir sögðu :) Allt sem hrjáir Önju í dag er tímabundið en það er einungis útaf fyrirbura skap!
Hún er það sem gefur lífinu lit
Guðbjörg Hrefna Árnadóttir


Ummæli