6 daga pása

Jæja þá erum við kominn aftur inn á barnaspítala í innlögn ég get alveg viðurkennt að geðheilsan mín er fara smátt og smátt , Stundum veit ég hreinlega ekki hvernig ég fór að þessu uppá vöku 4 mánuðir án þess að missa geðheilsuna það finnst mér alveg ótrúlegt, Við erum búin að vera hér uppá spítala síðan á sunnudaginn. Anja var búin að vera svo rosaleg hás og vorum við sammála um að við myndum nú láta kíkja á dömuna, Þar sáu læknarnir að hún væri að falla í mettun svo hún var í kjölfarið af því lögð inná barnadeild, Hún er búin að vera súrefnislaus síðan í gærkvöldi og verðum við útskrifuð á mrg ef allt fer vel í nótt :) Læknateimi úr öllum áttum ætla að setjast niður saman á mrg og ræða heilsu far Önju litlu vegna þess að yfir læknir HELDUR að þettta gæti tengst fótagallanum hennar ( Þá ekki genagalli) það var búið að útiloka það. En þeim finnst það ólíklegt vegna þess að stera pústin eru að virka á hana og ef að þetta myndi tengjast eitthverju öðru að þá myndi pústið ekki virka svona vel .
En ég krosslegg fingur, bið & vona það besta

Guðbjörg Hrefna Árnadóttir

Ummæli

Vinsælar færslur