6 Mánaða skotta 
Fyrir akkurat 6 mánuðum átti litla daman mín að koma í heimin en ómæ hún hafði önnur plön!! Þessi litla blómarós hefur sko breytt lífi okkar Einars til hinst betra ,Það er mikið búið að vera að gerast hjá okkur.

Anja er orðin 5080 Og loksins byrjuð að þyngjast hún þyngdist um 140 á 2 vikum sem er bara frábært á meða við undanfarnar vikur!! áður var það kanski 40 á 2 vikna fresti eða ekkert! En já þetta eru góðar fréttir það er allavegana enginn megrun hér á bæ.

Við fórum til bæklunar læknis með Önju okkar og við fengum að vita að eins og staðan er núna að þá mun Anja alltaf þurfa eitthverskonar stuðning við göngu vegna þess að aftan á lærisvöðvinn er ekki eins virkur og við vildum en hver veit hvað býr í framtíðinni ?, Hún mun byrja með göngugrind og göngu spelkur en með tímanum mun hún geta gengið aðeins með göngu spelkur, Þetta verkefni ætlum við fjölskyldan að takast á við með trompi og Anja litla hetjan mín mun halda áfram að vera duglega stelpan hennar mömmu sinnar, Við verðum bara áfram að vera dugleg að æfa okkur og núna er hún að verða svo stór að hún mun þurfa færa sig í sjúkraþjálfun í keflavík sem er rosalega hentugt þar sem við vorum að flytja í vogana bæinn sem ég er uppalin í. Hér mun Anja fara í leikskóla og svo skóla það er að segja ef við verðum ekki flutt út til danmerkar í nám þar sem ég vil læra klæðskeran og Einar stefnir á flugvirkjan.

En talandi um útlönd þá erum við Einar að fara til LONDON 17 sept. í viku sem mér finnst persónulega of langur tími frá Önju Mist, En ég hlakka samt einga síður til að komast aðeins með manninum mínu í rómantíska ferð sem við höfum svo sannarlega gott af. 



En þangað til næst.
Guðbjörg Hrefna Árnadóttir

Ummæli

Vinsælar færslur