Litla blómarósin mín orðin 5 mánaða.
Þann 12 mars 2015 Var Önju Mist áætlað í heiminn,
En hún hafði önnur plön haha! Sú er ákveðin,
En við foreldrarnir vorum svo heppinn að fá hana fyrr í hendurnar og fá að fylgjast með litla kraftarverkinu okkar vaxa og dafna fyrir utan móður kvið.

Anja er byrjuð að borða mun betur, Drekkur 120ml á 3 tíma fresti
Það var vanda mál með stirk útaf því að hún vildi ekkert drekka að
þá fannst henni svo erfitt að lyfta sér upp af maganum, Til allra hamingju
er hún byrjuð á því, Þannig nú eru allar áhyggjur gagnvart líkamlegum stirk og þroska mun minni.
Anja er að byrja að læra að sitja en getur haldið sér uppi í 3 sek í senn,
Ótrúlega dugleg.

Fyrsta tönnin komin í hús 

Undan farna daga er húin buin að vera alveg trilt i gómnum, Hún setur gjörsamlega allt uppí sig og nagar það... 
En viti menn litla daman er komin með eina litla Tönn í neðrigómnum og við fundum hana einum degi áður en hún varð 5 mánaða, Semsagt 11/8/2015. 

Ótrulega fyndið að að fylgjast með henni spjalla við dótið sitt og svo horfir hún svo stolt á mömmu sína og setur stút á munnin og öskrar, Hún er svo yndæl, 

Við bjóðum góða nótt 
Guðbjörg Hrefna Árnadóttir 

Ummæli

Vinsælar færslur