Hreyfiþroska próf 

Núna á  miðvikudaginn fór Anja í Hreyfiþroska próf hjá sjúkraþjálfaranum, Við mættum uppá Barnaspítala kl 11:00 hún byrjaði á leiktíma og þjálfun og svo kom að prófinu , Ég hafði pínu áhyggjur útaf því að frá því að við komum heim af vökudeild þá hætti hún að lyfta sér af maganum en hún seigir að það hafi bara dottið niður af æfinga leysi og útaf því að hún er aðeins of létt og þá er hún ekki með nógu mikla orku, Hún stóð sig eins og hetja og stóðst prófið hún er innan markana en hún er 1 striki fyrir neðan meðal , Sem verður ekkert mál það þýðir í raun og veru það að hún er að þroskast eðlilega en það vantar aðeins uppá stirk hjá henni, Sem við verðum bara að æfa :) æfa æfa og æfa !!!, Þetta ætti ekki að hrjá hana i framtíðinni , Vitsmunalegi þroskinn er 100% svo að hún er að standa sig alveg ótrúlega vel !!! "Litla valkyrja mín"

Góðar fréttir

Eftir sjúkraþjálfara tímann fórum við í læknis skoðun :) Ég var orðin aðeins á nálum yfir því að hún er ekki búin að þyngjast í mánuð,  Fyrst léttist hún og svo stóð hún bara í stað 4555 grömm Þannig ég vildi fá að tala við næringarráðgjafa, En allavegana ég var rosalega stressuð fyrir viktuninni ég alveg bað enda laust til guðs á meðan ég var þarna inni að eitthver þyngdar aukning hafi orðið, Svo var hún sett á viktina og "dadadadamm" hún er orðin 4666 grömm hún hafði þyngst um 111 grömm það er eðlilegt að þyngjast frá 100-150 grömm  svo hún er kominn á rétt ról !! :O Vá ég er svo ánægð að grautarnir eru farnir að segja til sín, Þeim leist rosalega vel á hana ég á að halda áfram eins og ég er að gera. Allt er frábært

Litla Anja elskar epla og peru mauk blandað í graut með 1 tsk af ólífoliu, Hún er ekki eins hrifinn af gulróta maukinu sem hún fær í hádeginu.

Lilla stendur sig svo vel og ég er svo heppin að vera mamma hennar.

Hún gefur lífinu lit. 







Guðbjörg Hrefna Árnadóttir 



Ummæli

Vinsælar færslur