Mikið búið að gerast frá seinasta pósti

Anja er að standa sig svo vel brosir og hjalar útí eitt alltaf að uppgötva ný og ný hljóð endalaust gaman að hlusta á hana babbla útí bláinn svo er mjög stutt í hláturinn, Um daginn hló hún 2 en hún er að spara það greinilega en hún grenjar úr hlátri uppúr svefni. 

En þá að læknis tímanum við hittum lækni sem sérhæfir sig í þroska og taugaþroska barna og leist henni svona svaðalega vel á Önju Mist hún hjalaði útí eitt, Hún var mæld 4650 grömm þetta gerist en það gerist hægt, Hún er að brillera í öllum prófum hún mætti vera duglegri að lifta sér upp frá maganum en það kemur ! 

Eftir læknistíman þá fórum við í sjúkraþjálfunn og tók sjúkraþjálfarinn eftir því að hún er byrjuð að hafa mun meiri vald á beygjunni sinni og beygjir lappirnar ákaft og sparkar útí loftið ég hef fulla trú á því að Anja eigi eftir að geta gengið eðlilega.


En þá að fyrsta sund tímanum 

Ég fór með Önju yndisfríð í fyrsta sund tímann sinn með sjúkraþjálfaranum og líkaði henni það rosalega vel :) og kendi hún okkur nokkrar æfingar sem við getum gert sjálf með henni í sundi.


Skemmtilegir tímar frammundann

Guðbjörg Hrefna Árnadóttir 

Ummæli

Vinsælar færslur