Langt er liðið síðan seinast
Tók mér stutta pásu í bloggkrifum eftir að hún kom heim, En ég er komin aftur hressari sem aldrei fyrr.

Ekkert nema góðar fréttir
Þessi dagur er búin að vera yndisegur, Áttum tíma upp á barnapítala í dag í þroskaskoðun allt gekk vonum framar að sjálfsögðu og var okkur tilkynnt það að hún væri örlítið á undan í þroska, Vá hvað mér langaði til að hoppa hæð mína á þessu augnabliki útaf því að það eru alveg heil 50 % að fyrirburar gætu verið aðeins á eftir í þroska þar að segja þeir sem fæddust undir 1000 grömmum, þannig já þetta var mikill léttir. Fínhreyfingarnar voru á sínum stað og hún spjallaði alveg fullt við hjúkrunarfræðinginn og þroskaþjálfaran,

Sjúkraþjálfunin gekk svo vel henni hefur farið svo mikið framm á þessum stutta tíma, Í þar seinasta tíma sá sjúkraþjálfarinn ekki beygju að ásettu ráði á fótunum hennar svo það var örlítil vonbrigði en svo núna 2 tímum seinna að þá er vöðvinn orðinn virkur og er hún byrjuð að beygja hann, það voru sko heldur betur gleðifréttir nú er hún búin að vera rúma 2 mánuði í spelkum og þarf hún að fara að fá nýar spelkur útaf því að hún er búin að vaxa uppúr gömlu spelkunum. Lífið er ljúft!
Guðbjörg Hrefna Árnadóttir

Ummæli