Gleðilegt sumar
Þann 18 apríl var dóttir mín skírð og fékk hún nafnið Anja Mist eins og svo margir vita. Þessi dagur var hreint út sagt frábær allt gekk smurt fyrir sig,
Ég og tengdó unnum hörðum höndum við baksturinn og brauðtertu gerð,Ég ákvað að gera skírna tertuna sjálf og tókst hún rosalega vel með góðri hjálp frá Guðrúnu tengdamömmu minni.
Sérstaka þakkir
Berglind mamma mín
Árni pabbi minn
Guðlaugi pabba mínum
Guðrún tengdó
Ólöf
Jón Ragnar
Heba, Og öllum sem hjálpuðu okkur að undirbúa salinn því ekki fengum við mikinn tíma ! Gott að eiga góða að
Fleiri myndir úr skírninni koma síðar.
Núna 22 apríl fórum við niður í Stoð og létum taka mót af löppunum hennar Önju Mist og fannst henni það ekki skemmtilegt, við fengum að velja munstur (stórustelpu munstur). Svo ætti þetta spelku vesen að fara að vera búið, enda eru fæturnir komnir í 90 gráður sem er sigur :) sjúkraþjálfarinn sér framfarir í hverjum einasta tíma.
Þessi er byrjuð að spjalla og brosa , elska að fá að kynnast henni hún er ljósið í lífi mínu
Guðbjörg Hrefna Árnadóttir





Ummæli